Ægir - 01.12.1985, Síða 39
Hjörtur Hermannsson:
Stjórnun
Þingforseti, þingfulltrúar.
Eg hef tekið að mér að hafa hér
framsögu um stjórnun fiskveiða
og mun gera grein fyrirsamþykkt-
um deilda og fjórðungsþinga í
þeirri röð sem að þing voru
haldin, og er þá fyrst ályktun
fjórðungsþings fiskideilda á Aust-
fjörðum, en það þing var haldið
13,—14. september 1985.
Frá Austfirðingum
Þeirra ályktun er svohljóðandi:
1. Að fiskveiðistefnan fyrir árið
1986 verði með svipuðum
hætti og 1985. Þar sem ekki
eru komnar fram hugmyndir
fiskifræðinga um fiskveiði-
stefnu næstu ára, telur þingið
ekki ástæðu til að breyta fyrra
fyrirkomulagi. Þó er vonast
til, miðað við þá bjartsýni,
sem ríkir hjá ýmsum, að kvóti
geti aukist.
2. Þingið ályktar, að gegndar-
lausu moki á smáfiski fyrir
Vestur- og Norðurlandi á við-
kvæmasta tíma ársins verði að
hætta og sett verði þak á veið-
arnar á umræddum tíma,
þannig að tryggt sé, að veiðar
fiskveiða
og vinnsla haldist sem best í
hendur.
3. Þingiðálítur, að misnotkun og
brask með úthlutaðan kvóta
sé komið út í öfgar og leggur
til, að kaupog sala á aflakvóta
verði íhöndumeinsaðila, t.d.
L.Í.Ú.
Greinargerð:
Stofnaður verði fiskbanki, þar
sem hægt verður að leggja inn
kvóta til geymslu eða sölu án þess
að vita fyrirfram, hver kaupir.
Verð á kvóta verði ákveðið af
bankanum, þannig að sama verð
gildi fyrir alla aðila.
Þá er hægt að hugsa sér, ef um
umfram kvóta verður að ræða á
næstaári, að hluti af honum renni
beint til bankans.
4. Þingið leggur til, að veiðar
smábáta undir 10 brl. verði
eingöngu bundnar við sókn-
armark, þannig að þorsk-
veiðar verði bannaðar í 150
daga á árinu 1986. Útgerð-
armaður ákveði sjálfur með
mánaðar fyrirvara sóknartíma
sinn fyrir hvort misseri ársins.
Allarúthlutanirtil þorskaneta-
veiða verði háðar kvóta, sama
af hvaða stærð bátur er, sem
sækir um leyfið.
Frá Norðlendingum
42. Fjórðungsþing fiskideild-
anna í Norðlendingafjórðunga
haldið á Akureyri 29. sept. 1985
samþykkir eftirfarandi:
1. Gildistími fiskveiðireglna
verði ekki skemmri en svo að
unnt sé að sjá tvö ár fram í
tímann.
2. Þingið varar við því, að binda
viðamiklar veiðireglur í lög
frá Alþingi. Einföld rammalög
sem gefa möguleika á raun-
hæfari stjórn með reglu-
gerðum er form sem þingið
telur að tryggi öruggari og
betri stjórn.
3. Þingið fellst á að árið 1986
verði í gildi ákvæði um afla-
mark eða sóknarmark að vali
útgerðar, enda fylgi 10%
skiptaregla tegunda aflamark-
inu. Sóknarmarkið verði gert
auðveldara í framkvæmd með
því að útgerðir geti valiðsókn-
ardaga sína.
4. Þingið mælir með því að
settar verði Ijósari reglur en
nú eru tillögur um í þá átt að
komast út úr fyrri viðmið-
unum aflakvótans.
5. Tekin verði upp kvótaskipting
á alla dekkbáta undir 10
tonnum. Byggt verði á afla
þeirra 1/11 1980 til 31/10
1983 í sömu hlutföllum og
gilda fyrir aðra útgerð. Bátar
sem komið hafa inn í veið-
arnar 1984 og 1985 fá með-
altalsaflamark í þessum
stærðarflokki. Opnir vélbátar
hafi leyfi til veiða með tíma-
takmörkunum þannig að
skerðing veiðidaga verði á
mismunandi tíma eftir lands-
hlutum. Nýir smábátar fái
ekki veiðiheimildir 1986.
Frá Vestlendingum
I. Humarkvóti. Samband fiski-
deilda á Vesturlandi leggur til að
ef um aukningu á humarkvóta
verði að ræða á næsta ári, þá
verði henni skipt með jöfnu
magni til núverandi leyfishafa, og
að ekki verði úthlutað leyfum til
nýrra aðila.
Samband fiskideilda á Vestur-
landi bendir á mjög mikinn
ágreining sem víða er vegna
ÆGIR-709