Ægir - 01.12.1985, Side 46
skipi íslendinga, sem Vest-
mannaeyingar keyptu á sínum
tíma, og það þannig tengt órjúf-
anlegum böndum, björgunar-
störfum á íslandi.
Öryggismál
1. 44. Fiskiþing fagnar því að
Slysavarnafélag íslands hefur nú
eignast varðskipið Þór og í því
sambandi bendir Fiskiþing á sam-
þykkt sína frá síðasta þingi um
hugmynd að þjálfunarmiðstöð
sjómanna.
í framhaldi af því skorar 44.
Fiskiþing á stjórnvöld, sjómanna-
skólana og aðra velunnara örygg-
ismála sjómanna að leggja þessu
máli lið, þannig að S.V.F.Í. verði
gert kleift að verja Þór frekari
hrörnun og halda honum jafnaní
haffæru standi.
44. Fiskiþing lýsir ánægju sinni
með það átak í námskeiðahaldi
fyrir sjómenn um öryggismál,
sem Slysavarnafélag íslands hefur
staðið fyrir að undanförnu og
einnig með fyrirliggjandi tillögur
stjórnskipaðrar nefndar um efl-
ingu þessa fræðslustarfs. Heitir
þingið á fjárveitingavaldið að
leggja fram nægilegt fé til þessa
mikilvæga máls.
Ennfremur ályktar þingið
eftirfarandi um öryggismál:
Skorar á samgöngumálaráðu-
neytið og Siglingamálastofnun-
ina að unnið verði að því að fyrir-
skipað verði að hafa Ijós á öllum
bjargbeltum og flotbúningum,
sem notaðir eru í skipum. Einnig
verði því beint til framleiðenda
sjófatnaðar að endurskinsborðar
verði hafðir á hettum og herða-
skikkjum sjófatnaðar.
Tekin verði upp skyldutrygging
allra þeirra, sem stunda sjósókn
á smábátum, er ekki falla nú
þegar undir skyldutryggingu.
716-ÆGIR
Átelur harðlega að Landhelgis-
gæslunni skuli ekki gert kleift að
halda úti skipakosti sínum til lög-
boðinna gæslustarfa.
Skorar á vitanefnd að hún sjái
um uppsetningu rastjársvara á
þeim stöðum sem brýnast er
talið, að höfðu samráði við Land-
helgisgæsluna.
Vegna slæmra fjarskiptaskil-
yrða í innanverðum Húnaflóa og
Berufirði skorar þingið á Póst- og
símamálastofnunina að bæta úr
því hið fyrsta.
Beinir því til hafnaryfirvalda að
þau sjái til þess að varnarkantar á
bryggjum séu ávallt í lagi og vel
merktir, neyðarstigar séu til
staðar svo og landgöngubrýr og
viðurkennd öryggisnet.
Þingið styður framkomnar hug-
myndir um orðsendingar og
stutta fræðsluþætti í ríkisfjölmiðl-
unum um öryggismál sjófarenda.
Þingið fagnar því að teknar
hafa verið upp skyndiskoðanir
skipa af Siglingamálastofnun og
Landhelgisgæslu og ítrekar að
þeim verði haldið áfram.
Öðrum tillögum deilda um
öryggismál leggur nefndin til að
vísað verði til stjórnar Fiskifélags
íslands, og hún hvött til þess að
fylgja þeim eftir af festu.
Það er:
1. Innsiglingabætur við Horna-
fjarðarós.
2. Flateyjarhöfn á Skjólfund
verði hreinsuð.
3. Veðurlýsingar frá Grímsey,
Hrauni á Skaga, Siglunesi,
Síðumúla og Vatnsskarðshól-
um.
4. Öldumælingarduflum verði
komið fyrir á fiskimiðum
minni báta.
5. Ljósmagn á Þrídrangavita
verði aukið.
6. Að veðurathugunum og lýs-
ingum verði framhaldið á
Hvallátrum.
Fisk- og
laxeldismál
44. Fiskiþing skorar á ríkis-
stjórn og Alþingi að samþykkja
framkomna tillögu til þi.ngsálykt-
unar nr. 764 um að sjávarútvegs-
ráðuneytið fari með fiskiræktar-
og fiskeldismál. Flutningsmenn
Kjartan Jóhannsson o.fl.
Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að gera breytingu á
reglugerð nr. 96 31. des. 1969,
um Stjórnarráð íslands, sem feli í
séraðfiskeldi, klak ogskyld starf-
semi í fiskiræktarstöðvum verði á
verksviði sjávarútvegsráðuneytis.
Greinargerð
Ekki verður af gildandi reglu-
gerð um Stjórnarráð íslands ráðið
hvaða ráðuneyti fer með fiskeldi
og skylda starfsemi í fiskiræktar-
stöðvum. í reglugerðinni er til-
tekið að „Veiði í ám og vötnum
svoogönnurveiðimál, ereigi ber
undir annað ráðuneyti" sé á verk-
sviði landbúnaðarráðuneytis.
Ekki er ætlunin með þessari til-
lögu að breyta því. Hin nýja og
vaxandi atvinnugrein, fiskeldi í
sérstökum fiskiræktarstöðvum,
fellur hins vegar ekki undir þessa
skilgreiningu.
Nauðsynlegt er að kveða á um
undir hvaða ráðuneyti þessi nýja
atvinnugrein heyri. Hér er gerð
tillaga um að sjávarútvegsráðu-
neytið fari með þessi mál enda
vafalaust að fiskeldi á samleið
með sjávarútvegi í mörgum
atriðum þ.á m. í markaðsmálum.
Ennfremur vísasttil viðauka við
lög nr. 44. 25. maí 1976 um Fisk-
veiðasjóð íslands, sérstaklega 3.
gr. laganna þar sem Fiskveiða-
sjóði er heimiltað veita lán vegna
stofnframkvæmda við fiskeldis-
stöðvar.