Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1992, Qupperneq 8

Ægir - 01.03.1992, Qupperneq 8
116 ÆGIR 3/92 Sjávarútvegurinn 1991 • Sjávarútvegurinn 1991 Sjávarútvegurínn 1991 Þorsteinn Gíslason fiskimálastjóri: Eins og áður birtist í þessu og næsta tölublaði Ægis hið árlega yfirlit sem ýmsir forystumenn sjáv- arútvegsins taka saman um gang útgerðar og fiskvinnslu síðastliðið ár, stöðu greinarinnar og framtíð- arhorfur. Eg færi þessum aðilum bestu þakkir Fiskifélagsins fyrir skýrarog vel samdar greinar. Við áramót Árið 1991 var áttunda kvótaárið eftir að sú aðferð var alfarið tekin upp við stjórn fiskveiða og það fyrsta á tímabilinu sem heildarafl- inn fór niður fyrir 1.500 þús. lestir. Árið færði íslensku þjóðinni þriðjungi minni sjávarafla en hvert hinna. Aðal ástæðan var hinn lé- legi loðnuafli. Samkvæmt áætlun Fiskifélagsins er heildaraflinn um 1.057 þúsund lestir og verðmæti aflans upp úr sjó 50,4 milljarðar króna. Árið 1990 var aflaverðmætið 47,5 mill- jarðar. Hefur því verðmæti aflans aukist um 6,1%. Þá er áætlað að andvirði útflutn- ingsins verði 75,0 milljarðar á móti 72,4 milljörðum 1990, sem er aukning um 3,6%. Samkvæmt áætlun verður þorsk- aflinn 308 þús. lestir sem er 25,5 þús. lestum minna en 1990 eða 7,7% samdráttur. Frá árinu 1987 hefur því þorskaflinn dregist saman um 21%. Þessi samdráttur sl. fjögur ár hefur því haft afger- andi áhrif á afkomu þjóðarinnar, þegar litið er á vægi útflutnings- verðmæta sem koma frá þorskin- um og hafa um árabil verið frá 40-45% af heildinni. Þrátt fyrir bjartsýni með ýsuafla dróst veiðin saman um 16,5%, varð um 55 þús. lestir á móti 65,9 þús. 1990. Ufsaflinn á árinu 1991 var 98 þús. lestir en það er mesti ársafli af ufsa sem íslendingar hafa náð. Næst mestur var aflinn 1990 eða 95 þús. lestir. Hefur því aflinn vaxið um rúm 3%. Af karfa náðust 102 þúsund lest- ir á árinu og hefur karfaaflinn vaxið um 7,6% en 1991 veiddust 94,8 þús. lestir. Hluti af þessum afla var tekinn á djúpmiðum utan landhelginnar. Grálúðuaflinn minnkaði enn annað árið í röð og hefur nú dreg- ist saman um 40% frá metárinu 1988, samdráttur í afla frá fyrra ári er 7%. Humarafli jókst hinsvegar á árinu og varð humaraflinn um 2.300 tonn sem er rúmlega 30% aukning frá fyrra ári. Þess verður þó að geta að meðalafli síðasta áratugar var ívið meiri en aflinn í ár. Rækjuaflinn óx um 4.000 tonn og var árið 1991 þriðja gjöfulasta árið til þessa. í ár var aflinn u.þ.b. 34 þúsund tonn eða 13% meiri en árið áður. Loðnuafli ársins var 266 þús- und tonn og dróst saman um tæp' lega 2A frá fyrra ári þegar aflinn var 692 þúsund tonn. Aflinn nú er rúmur fjórðungur þess sem hann var þegar best lét. Síldaraflinn var 80 þúsund tonn, en var í fyrra 90 þúsund tonn. Árið 1989 var síldaraflinn 97 þúsund tonn. Þess ber þó að geta að veiðitímabilið er lengra nú en það var 1989. Þannig voru tæplega 12 þúsund tonn af afia yfirstandandi árs veidd í janúar og febrúar, en sömu mánuði 1990 veiddust einungis rúm 2 þúsund tonn. Undanfarin ár hefur sjávarút- vegurinn búið við hagstæð ytr| skilyrði. Mikill og verðmætur afli hefur dregist á land, olíuverð lækkað og verð flestra afurða farið hækkandi. Áhrifin hafa endurspeglast úti1 þjóðlífinu. Hin illræmda verð- bólga náðist niður og tekist hefur að halda gengi föstu. Við slÁ skilyrði vex ævinlega bjartsým og framkvæmdagleði. Árið 1987 voru samþykkt lög á Alþingi um frjálsan fiskmarkað. Og á sama

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.