Ægir - 01.08.1992, Blaðsíða 10
402
ÆGIR
8/92
Lokahönd lögð að breytingum á
húsnæði Fiskistofu í Fiskiféiagshúsinu
Höfn við Ingólfsstræti. Ljósm.: J.S.
Lokaáfangi að stofnun
Fiskistofu
Frá lokum 50. Fiskiþings til vors
1992 fóru fram viðræður milli
sjávarútvegsráðuneytis og Fiskifé-
lags um breytingar á stjórnsýslu
sjávarútvegsins. Þann 2. apríl sl.
var loks lagt fyrir Alþingi frum-
varp til laga um stofnun Fiski-
stofu. I frumvarpinu kom fram að
setja ætti á laggirnar stofnun und-
ir nafninu Fiskistofa sem fara
skyldi með framkvæmd laga um
stjórn fiskveiða og eftirlit með
fiskveiðunum. Fiskistofa mætti að
höfðu samráði við Hagstofu fela
Fiskifélagi íslands söfnun upplýs-
inga á sviði sjávarútvegsmála, úr-
vinnslu gagnanna og útgáfu hag-
skýrslna. Frumvarpið var sam-
þykkt sem lög frá Alþingi 27. maí
1992 með þeirri breytingu að í
stað þess að Fiskistofa „mætti"
fela Fiskifélaginu verkefni, þá var
lagasetningin að Fiskistofa
„skyldi" fela Fiskifélaginu þessi
verkefni. Að fenginni síðasttöldu
breytingunni lagði stjórn Fiskifé-
lagsins blessun sína yfir stofnun
Fiskistofu.
í Ægi hefur á undanförnum
árum margoft verið varað við að
of mikil stýring hins opinbera á
starfsemj sjávarútvegsins verði til
að skaða atvinnugreinina. Nú er
grundvöllur fyrir slíkri ofstýringu
fyrir hendi í formi Fiskistofu, sem
að vísu heyrir undir ráðherra en
hefur vafalaust eins og aðrar op-
inberar stofnanir eigin hvata til
vaxtar. Þessvegna er mjög mikil-
vægt að sjávarútvegurinn veiti
Fiskistofu aðstoð og aðhald á
þeim tíma sem hún stígur fyrstu
sporin. harf enginn sem starfar í
sjávarútvegi að fara í grafgötur
með það að hlutverk og valdsvið
Fiskistofu gerir að verkum að
starfsemi hennar mun hafa áhrif á
daglegan rekstur hvers einasta
sjávarútvegsfyrirtækis í landinu.
Ægir óskar starfsfólki Fiskistofu
alls góðs í þeirra starfi og að starf-
ið verði íslenskum sjávarútvegi til
heilla.
Fiskistofa
Eftirfarandi kafli er greinargerð
frá Fiskistofu um umfang stofnun-
arinnar og helstu þætti starfsem-
innar.
Hinn 1. september urðu kafla-
skipti í stjórnun fiskveiða á íslandi
með því að hún var sett í hendur
nýrrar stofnunar - Fiskistofu-
Fiskistofa starfar skv. lögum nr.
36, 27. maí 1992 og er stjórn-
sýslustofnun sem heyrir undir
sjávarútvegsráðherra. Fyrstur til
að gegna embætti fiskistofustjóra
er Þórður Ásgeirsson, en hann var
skrifstofustjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins árin 1971-1981. Stofn-
un Fiskistofu hefur óneitanlega
töluverð áhrif á starfsemi Fiskifé-
lags íslands, enda flytjast til Fiski-
stofu verkefni sem hafa verið i
höndum þess og auk þess hefur
orðið að ráði að Fiskistofa hefur
tekið á leigu tæplega helming
húsnæðis Fiskifélagsins að Höfn
við Ingólfsstræti og er því undir
sama þaki og Fiskifélagið. Þá gera
lögin um Fiskistofu ráð fyrir þvl
að stofnunin feli Fiskifélaginu
söfnun tiltekinna upplýsinga, ur-
vinnslu þeirra og útgáfu hag-
skýrslna á sviði sjávarútvegsmála-
Helstu verkefni hinnar nýju
Fiskistofu eru og verða annars
þessi:
A. Dagleg stjórn og eftirlit með
öllum fiskveiðum. í þessu felst ut-
gáfa leyfa til veiða í atvinnuskyn'
Magnea Jónsdóttir á skýrsludeild. Líklega munu velflestir fiskverkendur vera
málkunnugir þeim Magneu og Þórarni eftir áratuga starf þeirra hjá FiskifélaginJ-
Ljósm.: J. S.