Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1992, Síða 19

Ægir - 01.08.1992, Síða 19
8/92 ÆGIR 411 HAGSKYRSLUR Bækur um landsins gagn og nauðsynjar Nýlegar útgáfur: EES í tölum Hagstofa Evrópubandalagsins og Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA hafa gefið þetta upplýsingarit út. í því er að finna yfirlit um mannfjölda og umhverfi, efnahagslíf, atvinnulíf, verðlagsmál, peningamál, samgöngur, ^enntamál o.fl. Gefnar eru upplýsingar um einstök lönd EFTA og EB og einnig dregnar saman upplýsingar fyrir EFTA, EB og Evrópska Efnahagssvæðið í heild. Ritið kostar 100 kr. Statistik utan granser I samvinnu við hagstofur hinna Norðurlandanna hefur Hagstofa íslands gefið út geisladisk sem á er gagna- S^unnur með norrænu og alþjóðlegu talnaefni. Gagnagrunninum fylgir einnig forrit sem er notað til þess að leita í honum og vinna með talnaefnið. Hægt er hægt að setja efnið fram á myndrænan hátt t.d. í súlum, stöplum, sneiðmyndum o.þ.h. Geisladiskurinn kostar 4.000 kr. Fyrirtækjaskrá 1992 Fyrirtækjaskrá er nú með nýju sniði, þannig að nú er auk kennitölu og heimilisfangs fyrirtækja og félaga- samtaka að finna símanúmer og virðisaukaskattnúmer þeirra. Skráin kostar 2.700 kr. Norræn tölfræðihandbók 1992 Hagstofan annast dreifingu hérlendis á Norrænni tölfræðihandbók (Yearbook of Nordic Statistics), sem Morðurlandaráð og norræna hagstofan gefa út. í riti þessu er margvíslegur fróðleikur í talnaformi um Norðurlönd og þær þjóðir sem þau byggja. Handbókin fyrir árið 1992 er um 430 bls., verð 2.500 kr. ^aeritanlegar útgáfur í október: Landshagir 1992 1 htinu er að finna mikinn fróðleik um mannfjölda, atvinnuvegi, félags- og heilbrigðismál, menntamál, Þjóðarbúskap, verslun o.m.fl. Ómissandi rit öllum þeim sem vilja fræðast um hag lands og þjóðar. Ritið mun kosta 2.100 kr. Verslunarskýrslur 1991 ' Þeim -eru ítarlegar upplýsingar um utanríkisviðskipti íslendinga á árinu 1991. Skýrslan hefur verið endurbætt, þannig að nú er að finna texta við öll tollnúmer og gerir það hana mun aðgengilegri en áður. Ollum þeim sem vilja kynna sér viðskipti okkar við umheiminn er hún ómissandi rit. Skýrslan mun kosta 1.800 kr. Kosningaskýrslur I-11 eru að koma skýrslur um Sveitarstjórnarkosningar 1990 annars vegar og Alþingiskosningarnar 1991 hins Vegar. Tekin er upp sú nýbreytni að gefa út skýrslu um sveitarstjórnarkosningar í sérriti, en skýrslan um alþingiskosningarnar er með hefðbundnu sniði. Hvort rit mun kosta 500 kr. Sveitarsjóðareikningar 1987-1988 Flagstofan hefur gert gangskör að því að koma út skýrslum um sveitarsjóðareikninga og síðan 1990 hafa 7°mið út reikningar sveitarfélaga fyrir árin 1979-1986. í október kemur út skýrsla um sveitarsjóðareikninga tyrir árin 1987 og 1988 og um áramót eru væntanlegar skýrslur fyrir árin 1989 og 1990. Sveitarsjóðareikningar 1987-1988 munu kosta 1.800 kr. HAGSTOFA ISLANDS Skuggasundi 3 150Reykjavík

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.