Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.1992, Qupperneq 36

Ægir - 01.08.1992, Qupperneq 36
428 ÆGIR 8/92 NÝ m FISKISKIP U/ / þessu tölublaði Ægis birtast iýsingar af Tjaldi SH 270 og Lísu Maríu ÓF 26, tveimur stærstu sérhæfðu línuveiðiskipum flotans, bæði búin Mustad línuvélasamstæðu, en með gjörólíku fyrirkomulagi. Tjaldur SH er nýsmíði með búnað til heilfrystingar og saltfiskverkunar, en Lísa María ÓF er innflutt skip með búnað til flaka- vinnslu, heilfrystingar og saltfiskverkunar. Tjaldur SH 270 22. ágúst var Tjaldur SH 270 afhentur frá skipa- smíðastöðinni Solstrand Slip & Baatbyggeri A/S, Tomrefjord í Noregi, en skipið kom til heimahafnar á Rifi 1. september. Skipið er nýsmíði nr. 58 hjá Sol- strand, en skrokkur skipsins er smíðaður hjá Salt- hammer Baatbyggeri A/S í Vestnes. Tjaldur SH er þriðja skipið frá umræddri stöð í ís- lenska fiskiskipaflotanum, hin fyrri eru Ásgeir Frí- manns ÓF 21 (sjá 11. tbl. ‘90) og Skotta HF 172 (6. tbl. 92), en bæði þessi skip voru keypt notuð. Þess má geta að Tjaldur er hið fyrra af tveimur systurskip- um, sem útgerð skipsins samdi um á sl. ári og er síð- ara skipið væntanlegt síðar á þessu ári. Skipið, sem er hannað hjá Solstrand Slip & Baat- byggeri, er tveggja þilfara sérhæft línuveiðiskip með línuvélasamstæðu og búnað til heilfrystingar og salt- fiskverkunar og er í reynd fyrsta sérhæfða tveggja þil- fara línuveiðiskipið sem smíðað er fyrir íslendinga. Tjaldur SH kemur í stað tveggja trébáta, þ.e. Val- esku EA 417 (263) og Brynjólfs SH 370 (225), en auk þess hverfur úr rekstri lítill trébátur. Tjaldur SH er í eigu Kristjáns Guðmundssonar hf., Rifi. Skipstjóri á skipinu er Jóhann R. Kristinsson og yfirvélstjóri Valdimar Jónsson. Framkvæmdastjóri út- gerðar er Guðmundur Kristjánsson. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki * 1A1, Fis- hing Vessel, lceC, * MV. Skipið er með tvö heil þil- för stafna á milli, perustefni og gafllaga skut, hvalbak að framan og yfirbyggingu að aftan, þ.e. íbúðarhæð og brú á reisn fremst á henni. Skipið er búið til línu- veiða (með netaveiðimöguleika) og með búnað til heilfrystingar og saltfiskverkunar. Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórurn vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rými, tal' íraman frá: Stafnhylki fyrir t'erskvatn; tvískipta je5t með hliðarskrúfurými fremst og botngeymum fyr|r brennsluolíu; vélarúm með síóugeymum fVrir brennsluolíu; beitufrysti og aftast skutgeyma f>'rir ferskvatn. Fremst á neðra þilfari er stafnhylki, þá tveir frysf' klefar, en þar fyrir aftan vinnuþilfar með Iínudráttar klefa fremst s.b.-megin. Aftast á neðra þilfari er li'nU' gangur s.b.-megin og íbúðarými til hliðar viö hanf og lagningarrými aftast. Fremst á efra þilfari er lokað hvalbaksrými. Fremst í því er geymsla, keðjukassar og rými fyrir vökva dælukerfi, og frystivélarými aftantil. Aftantil á etra þilfari er íbúðarými með andveltigeymi frá Ulste|ri fremst. Mesta lengd.......................... 43.21 111 Lengd milli lóðlína (HVL)............ 39.00 m Lengd milli lóólfna (perukverk)... 37.50 m Breidd (mótuð)........................ 9.00 m Dýpt að efra þilfari.................. 6.80 m Dýpt að neðra þilfari................. 4.30 m Eigin þyngd............................ 537 t Særými (djúprista 4.30 m).............. 960 t Burðargeta (djúprista 4.30 m)..... 423 t Lestarými.............................. 415 m Beitufrystir............................ 58 m^ Brennsluolíugeymar (m/daggeymi) 106.2 m^ Ferskvatnsgeymar...................... 34.6 m Andveltigeymir (sjókjölfesta)..... 32.0 m Tonnatala.............................. 688 Bt Rúmlestatala........................... 412 br Ganghraði (reynslusigling)............ 12.2 I111 Skipaskrárnúmer....................... 2158

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.