Ægir - 01.08.1993, Page 2
Dagana 15. -19. september 1993 mun athygli allra þeirra, er láta
sig sjávarútveg og fiskvinnslu varða, beinast að Laugardalshöllinni.
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin, sem þar verður haldin, er ein sú
stærsta sinnar tegundar í heiminum. Þar verður kynnt allt það nýjasta
í heimi sjávarútvegsins. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn að nýta
alla þá möguleika sem nýr búnaður og tækni bjóða upp á.
Um 300 fyrirtæki víða að úr heiminum kynna vöru sína og þjónustu.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir íslendinga, sem byggja alla lífsafkomu
sína á sjávarfangi, að fylgjast með og kynna sér það nýjasta í
greininni og þær hröðu tækniframfarir sem eru að verða.
íslenska sjávarútvegssýningin 1993 er heimsviðburður á sínu sviði.
Þetta er sýning sem varðar alla landsmenn og enginn ætti að láta
fram hjá sérfara .