Ægir - 01.08.1993, Page 12
„Þaö getur verið mjög
viturlegt að lækka verö
og sá sem fyrstur er til aö
lækka og lækkar á réttum
tíma, hann græöir. Hann
er ekki aö undirbjóða.
Hann er einungis aö gera
sér grein fyrir
markaöinum."
fáránlegt að stjórnvöld séu að stööva
útflutning. Ef menn vilja flytja fiskinn
út á einhvern ákveðinn máta þá er
þaö vegna þess aö það gefur betra af
sér en eitthvað annað. Og af hverju þá
að stööva útflutninginn ef hann gefur
betur af sér? Ferskur, flattur fiskur var
í samkeppni viö frystingu, hefö-
bundna söltun og útflutning í gám-
um. Þaö átti að vera nægilegt aðhald
til þess að menn væru ekki að gera
neina vitleysu. Stjórnvöld eiga ekki aö
segja þér um hvað þú skrifar eða við
hverja þú átt viðtöl. Það verður þú að
ákveða sjálfur. Eins er með útflytjend-
ur og framleiðendur. Þeir verða að
ákveða sjálfir hvað þeir taka sér fyrir
hendur og að framleiða það sem gefur
best."
Stjórnvöld hœttulegasti óvinurinn
„Auðvitað verður líka að hugsa um
atvinnu. Það má hins vegar ekki ger-
ast með boðum og bönnum. Það er
hægt að hugsa sér einhverjar hömlur
sem ekki eru boð eða bann. Ég nefni
sem dæmi 20% kvótaskerðinguna sem
beitt er ef menn senda fiskinn óunn-
inn út. Þó ég hafi sagt áðan að vitur-
legra væri að verðlauna menn en refsa
má segja að þessi aöferð sé skynsam-
legri en bann úr því stjórnvöld telja
sig þurfa að skipta sér af þessu. Niður-
staða mín er engu að síður sú að
hættulegasti óvinur þeirra sem standa
á eigin fótum í fiskvinnslu er hvorki
aflaleysi né lágt afurðaverð heldur
stjórnvöld."
Undirboö eru ekki til
Útflytjendum í sjávarútvegi hefur
fjölgað verulega á síðustu árum og nú
heyrast raddir um að þeir undirbjóði
hver fyrir öðrum, til dæmis á Banda-
ríkjamarkaði. Hver er þín skoðun á
þessu?
„í hvert skipti sem ég heyri mann
sem er í viðskiptum tala um undirboð
þá veit ég strax aö hann hefur ekkert
vit á viðskiptum. Það er ekki hægt að
skilgreina hugtakið undirboð svo
gjörla. Það getur verið mjög viturlegt
að lækka verð og sá sem fyrstur er til
að lækka og lækkar á réttum tíma'
hann græðir. Hann er ekki að undir-
bjóða. Hann er einungis að gera ser
grein fyrir markaðinum. Markaðurinn
tekur alltaf sveiflur og hefur alltaf
gert. Hitt er svo annað mál að það lifit
enginn af því að selja ódýrt og lækka
verð. Þeir sölumenn eru ekki langlífir1
hinum harða heimi viðskiptanna-
Undirboð er afar afstætt hugtak, sér-
staklega þegar það hrýtur af vörum
manna sem orðið hafa undir í við-
skiptum. Það getur verið afar hentugt
að útskýra mistök sín með þessu eina
orði: Undirboð."
Framtíð í þurrkun fisks
„Framtíðaráform mín? Ég er þeirrat
skoðunar að ég hafi tekið mér nóg fyr'
ir hendur. Ég vil ekki stækka það sem
ég er með heldur reyna að hlúa að
því. Hins vegar veit ég að hér á landi
felast mikil tækifæri í að þurrka fisk-
Sannleikurinn er sá að í sextíu ára ein-
okun á útflutningi á saltfiski héöan
höfum við glutrað niður þessari verk-
kunnáttu. Og þar með mörkuðunum-
en þurrkaður saltfiskur er um 70% af
öllum saltfiski sem neytt er í heimin-
um. Markaður fyrir blautfisk eins og
við erum að flytja út til Spánar er1
raun mjög takmarkaður. Öll Suður-
Ameríka og Portúgal vilja þurrkaðan
fisk. Áður fyrr var fiskurinn þurrkaðnr
úti á grundunum og ömmur okkar
unnu við það. Hins vegar er rakastig
og fleira ótryggt úti. Þessu hafa PorW'
galar séð við og hafa reist ser
þurrkverksmiðjur. Norömenn eru
afkastamiklir í þurrkun. Til dæmis fer
öll keila og langa sem veidd er á línn a
334 ÆGIR ÁGÚST 1993