Ægir - 01.08.1993, Blaðsíða 24
Þrátt fyrir erfiðleikana í
fœreyskum sjávarútvegi er
enga uppgjöfað sjá á þessum
unga fiskimanni.
vegna verðfalls á erlendum mörkuð-
um. Þeir stofnuðu heildarsamtök og
kröfðust þess að fá föst, vísitölutryggð
laun eins og verkafólk í landi.
Barist um hylli kjósenda
Árið, sem dagróðramenn settu fram
þessar kröfur, var kosningaár. Fjórir
stórir flokkar börðust um hylli kjós-
enda. Þjóðveldisflokkurinn var, eins
og nafnið bendir til, flokkur þjóðern-
issinna. í Sambandsflokknum voru
dansksinnaöir Færeyingar sem börð-
ust gegn öllum breytingum á tengsl-
um Danmerkur og Færeyja. Fólka-
flokkurinn var flokkur hægri aflanna
og helsta vígi útgerðarmanna og
frystihúsaeigenda. Jafnaðarflokkurinn
hafði veitt landsstjórninni forstöðu
frá því 1970 og átti eins og fyrr segir
hina nýju og skæru stjörnu færeyskra
stjórnmála, Atla Dam.
Þjóðveldisflokkurinn vinnur
stórsigur
Þjóðveldisflokkurinn studdi kröfur
dagróðramanna og hét því að hjálpa
þeim ef þeir veittu flokknum brautar-
gengi í þingkosningunum. Það var
eins og við manninn mælt: flokkur-
inn vann stórsigur, tók þátt í stjórnar-
myndun og fékk sjávarútvegsráðherr-
ann, Petur Reinert. Flann var læknir a
Eiði, smábæ í N-Færeyjum, og jafO'
framt aðaleigandi eina frystihússins i
bænum.
Heildarlausnin mótuð
Reinert hófst þegar í stað handa við
að efna kosningaloforðin sem flokkur
hans hafði gefið, þ.e. að tryggja litl11
bátunum stööugt verð fyrir aflann-
Hann fékk í lið með sér endurskoð-
andann Carl Wilhelm Weihe seni
346 ÆGIR ÁGÚST 1993