Ægir - 01.08.1993, Qupperneq 44
Forystu afhálfu íslendinga
um tilraunir til að knýja
fiskiskipaflota landsmanna
með vetnisgasi, framleiddu
hér á landi, hafa
prófessorarnir Bragi Árnason
og Valdimar K. Jónsson.
Myndin á síðunni hér á
undan er afþeim félögum.
ugt eldsneyti fyrir skip en bíla og
þotur. Tii dæmis ætti þyngd og
rúmmál eldsneytis ab skipta minna
máli í skipum. Þar af leiðandi ættu
skip að geta flutt með sér vetni hvort
sem það er vökvi eða vetnisgas bund-
ið í málmhydríðum", segir Bragi Árna-
son.
Fljótandi vetni og
vetnisgas
Talsverðu máli skiptir hvort um
vökva eða gas er að ræða með tilliti til
þyngdar og geymslurýmis. Ef nota á
fljótandi vetni á núverandi aflvélar og
skipin eiga að geta flutt með sér jafn-
mikið eldsneyti og þau gera nú verður
þyngd eldsneytisins aðeins einn þriðji
af því sem nú gerist þar sem vetni er
afar létt miðað við orkuinnihald.
Rúmmál eldsneytisgeyma verður hins
vegar þrefalt meira. Ef nota á vetnis-
gas, bundið í magnesíumhydríði, en
magnesíum hefur mesta geymslurýmd
þeirra hydríða sem nú eru þekkt,
verða eldsneytisgeymarnir nær fimm-
falt þyngri en olían er nú og rúmlega
tvöfalt stærri. Þótt þessi mikla aukn-
ing á þyngd og rúmmáii eldsneytis-
geyma þegar um hydríð er að ræ&a
kunni við fyrstu sýn að virðast vanda-
mál er svo ekki að dómi þeirra sena
hanna og smíða skip. í þessu sam-
bandi má benda á aö í togara nútuo-
ans er sett mikil steypa til ab auka
kjölfestuna.
Ný gerö aflvéla,
efnarafalar
Vib þetta má svo bæta því, að vetm
má einnig brenna í nýrri gerð aflvéla
sem nú er verið að þróa og gera til-
raunir meb, svonefndum efnarafölum
(fuel cells). Við brennsluna myndad
eingöngu hreint vatn og efnaorka
eldsneytisins breytist fræðilega séö
100% í raforku. Efnarafalar eru þesS
vegna ekki háðir takmörkun á breýt'
ingu varma yfir í annað orkuform-
Orkunýtni efnarafala er nú um 55°/°
en í náinni framtíö er áætlað að nýtU'
in geti orðið um 66% eða nálega tvo-
falt betri en orkunýtni eldsneytis sem
brennt er meb hefðbundnum aflvél-
um. Þetta merkir að eldsneytisnotkutt
véla yrbi aðeins helmingur af því sem
366 ÆGIR ÁGÚST 1993