Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Blaðsíða 7
TIMARIT LOGFRÆÐINGA
1. hefti, viarz 1952
Lögmannafélag Islands 40 ára
Þann 11. desember s.l. voru 40 ár liðin frá stofnun Lög-
mannafélags Islands. Á aðalfundi félagsins þ. 29. júní s.l.
var ákveðið að minnast afmælisins með hófi, og á fundi,
sem haldinn var þ. 20. nóvember s.l., var samþykkt að hófið
skyldi fara fram þann 15. desember. Á sama fundi var ein-
róma samþykkt, í tilefni af afmælinu, að kjósa sem fyrstu
heiðursfélaga félagsins þá Svein Björnsson forseta Is-
lands og Lárus Fjeldsted, hæstaréttarlögmenn. Skyldi af-
henda þeim heiðursskjöl í hófinu, en þangað voru þeir báð-
ir boðnir ásamt öllum núlifandi stofnendum félagsins og
fjölmörgum öðrum gestum.
Svo illa vildi til, að báðir heiðursgestirnir veiktust
skömmu fyrir hófið og varð því að fresta því um óákveð-
inn tíma. En skömmu seinna varð, eins og kunnugt er, sá
sorgaratburður, að forseti Islands andaðist.
Nú hefur verið ákveðið að efna til afmælishátíðarinnar
af nýju þann 4. apríl n. k. og verður reynt að vanda til
þeirrar hátíðar svo sem föng eru á.
I ráði var, að ýtarleg grein um félagið, starfsemi þess og
hag á undanförnum árum kæmi í þessu hefti tímaritsins,
í tilefni 40 ára afmælisins, en af ýmsum ástæðum gat það
ekki orðið. Verður það að bíða næsta heftis, en þar mun
einnig verða skýrt nánar frá hátíðahöldunum.
Félagsstjórnin væntir þess, að félagsmenn fjölmenni til
hófsins, svo það verði félaginu til sóma og félagsmönnum
og gestum til sem mestrar ánægju.
Stjóm Lögmannafélags Islands.