Tímarit lögfræðinga - 01.10.1956, Side 58
Á víð og dreif
NÝ RÍKISSTJÓRN tók, eins og kunnugt er, við völdum
s.l. sumar. Lét Bjarni Benediktsson af störfum dómsmála-
ráðherra, en við tók Hermann Jónasson hæstaréttarlög-
maður, fyrrv. forsætisráðherra. Er hann jafnframt for-
sætisráðherra hinnar nýju stjórnar.
Störf dómsmálaráðherra eru nánar tengd lögfræðinga-
stéttinni en störf annarra ráðherra. Mikils er því um vert,
að í þá stöðu veljist góðir og reyndir lögfræðingar og má
heita ófært að henni gegni menn, sem ekki hafa lögfræði-
menntun. Ber að fagna' því, að báðir þessir dómsmála-
ráðherrar eru að þessu leyti vel til starfans fallnir. Geri
ég ráð fyrir, að lögfræðingastéttin sé á einu máli að þessu
leyti, þótt lögfræðinga eins og aðra greini á um stjórnar-
stefnur þessara ráðlierra.
NÝR HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR. I desember lauk
Kristinn Gunnarsson hdl. prófraun sinni við hæstarétt.
Siðan hann lauk lagaprófi hefir hann stundað málflutn-
ing hér í Revkjavík og lengi verið fulltrúi hjá Sveinbirni
Jónssyni hæstaréttarlögmanni.
LEIÐRÉTTING. Greinin: „Um eignar- og umráðarétt
jarðhita", sem birtist í siðasta (III) hefti er eftir Ólaf
Jóhannesson, prófessor. Vegna mistaka er nafns lians ekki
getið við greinina og því reynt að bæta um það með þess-
ari leiðréttingu.
„FORHANDLINGER pá det tyvende nordiske jurist-
möte i Oslo den 23.—25. August 1954“ eru nú loks komnar
út og hafa borizt hingað um það leyti, sem verið var að
ganga frá þessu hefti. Félagsmenn Norræna lagamanna-
sambandsins munu fá bókina fljótlega — og liklega hafa
fengið hana þegar lieftið kemur út.
248
Tímarit lögfrœðinga