Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Page 7
miAitn- m
Iik.lltlDIVI.A
1. HEFTI 26. ÁRGANGUR MAÍ 1976
ÁBYRGÐARSJÓÐUR LÖGMANNA
Það er einkenni íslenskrar lögmannastéttar, hve þess gætir lítið, að
lögmenn sérgreini sig í einhverri ákveðinni grein lögfræðinnar, en mikið er
um slíkt víða erlendis. Að vísu er eitthvað um það, að einstaka lögmenn leggi
meiri áherslu á fasteignasölu en málflutning, eða að menn fari frekar með
opinber mál en einkamál. Þó kveður ekki mikið að þessu. Flestir lögmenn
hér á landi stunda alhliða lögfræðistörf.
Segja má, að eitt sé sameiginlegt með flest öllum lögmönnum, en það er
fésýsla þeirra fyrir aðra. Það felst í starfi lögmanna að þeir þurfa að taka
við peningum og öðrum fjármunum skjólstæðinga sinna og annarra og varð-
veita þá um lengri eða skemmri tíma. Varla er nokkurri annarri stétt hér á
landi sýnt slíkt traust. En þvf er ekki að neita, að fyrir hefur komið, að ein-
staka menn hafa brugðist þessu trausti.
I öðrum löndum, þar á meðal Norðurlöndum, hefur á síðari árum verið
gripið til ýmissa ráða til að vernda hagsmuni skjólstæðinga lögmanna. Má
þar telja svokallaða klientkonto, en þá er lögmönnum skylt að leggja pen-
inga skjólstæðinga strax á sérstakan bankareikning og jafnframt að halda
þeim aðgreindum í bókhaldi sínu. Þetta kerfi hefur þann kost að peningarn-
ir eru sérgreindir og skjólstæðingarnir fá greiðslu úr búinu utan skuldaraðar,
ef lögmaðurinn verður gjaldþota. Þetta kerfi hefur verið tekið upp víða
um lönd, t.d. í Englandi 1933, Svíþjóð 1936, Danmörku 1940 og Noregi sama
ár, og síðan í flestum vestrænum löndum. Þó að kerfi þessu fylgi ströng eft-
irlits- og endurskoðunarkvöð, sem viðkomandi lögmannastéttir verða að
þola, hefur reynslan sýnt, að klíentkontokerfið hefur ekki reynst nægileg
trygging fyrir skjólstæðingana.
Af þessum ástæðum hefur verið gripið til þess ráðs víða erlendis að koma
á fót svokölluðum ábyrgðarsjóði (Erstatningsfond) til verndar hagsmunum
skjólstæðinganna. Slfkir sjóðir starfa í Englandi (síðan 1941), Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. í Finnlandi er fyrirhugað að stofna ábyrgðarsjóð.
Á síðasta aðalfundi LMFÍ, sem haldinn var 26. mars sl., var lagt fram að
tilhlutan stjórnar félagsfns frumvarp að samþykktum fyrir ábyrgðarsjóð
1