Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Blaðsíða 43
sérstakar aðgerðir (special-action) og 3. beiðnir um skyndiaðgerðir (urgent-
action).
Um 1. Starfsemin var í stórum dráttum fólgin í bréfaskiptum vegna þeirra
fanga, sem hópunum var falið að vinna fyrir, en hvor hópur fékk það verk-
efni að fá þrjá fanga látna lausa úr fangelsum.
Um 2. íslandsdeildin fékk Stærðfræðingafélag íslands til að senda sov-
éskum yfirvöldum mótmæli vegna meðferðar þeirra á sovéska stærðfræð-
ingnum Leonid Plyusch, en eins og kunnugt er hefur Plyusch nú fengið að
setjast að á Vesturlöndum. — islandsdeildin safnaði undirskriftum íslenskra
listamanna undir beiðni um almenna náðun fanga í Tékkóslóvakíu, og
stjórnarmenn fylgdu þeirri beiðni eftir með mótmælaheimsókn í tékkneska
sendiráðið í Reykjavík. — Þá afhenti stjórn deildarinnar sovéska sendiráð-
inu skrifleg mótmæli vegna handtöku Amnesty-félaga í Sovétríkjunum. —
Loks má nefna svonefnda ,,samviskuviku“, en meðan á henni stóð voru að-
stæður 12 fanga frá jafnmörgum löndum kynntar í fjölmiðlum.
Um 3. Svo margar beiðnir bárust um einstakar skyndiaðgerðir, að ógjör-
legt reyndist að sinna þeim að nokkru marki, og eru úrbætur á því sviði
brýnt framtiðarverkefni.
Ýmsir æðstu forystumenn alþjóðasamtakanna sóttu ís-andsdeildina heim
þegar á fyrsta ári. Var það óvenjuleg en mikilvæg upþörvun. Má þar nefna
Andrew Blane frá New York, sem er fulltrúi U.S.A. í framkvæmdastjórn A.I.,
Eric Baker, sem á síðasta ársþingi A.l. var kjörinn forseti samtakanna, og
Martin Ennals, sem er núverandi framkvæmdastjóri þeirra.
Þrír stjórnarmenn fóru utan á vegum Islandsdeildarinnar. Berglind Ás-
geirdsóttir gjaldkeri og Ingi K. Jóhannesson, meðstjórnandi og síðar gjald-
keri, heimsóttu aðalstöðvarnar í London. Formaður deildarinnar sótti ársþing
A.l. í St. Gallen í Sviss.
Að lokinni skýrslu forystumanna starfshópa, ritara og gjaldkera fór fram
á aðalfundinum stjórnarkiör. Formaður og ritari, Jóna Lísa Þorsteinsdóttir,
báðust undan endurkjöri. I stjórn næsta starfsár voru einróma kjörin:
Hilmar Foss formaður, Ingi K. Jóhannesson, Hrafn Bragason, Linda Jóhannes-
son og Einar Karl Haraldsson. Varamenn voru kjörnir Hjördís Hákonardóttir
og Einar Magnússon og endurskoðendur Hreggviður Jónsson og Vagn E.
Jónsson.
Björn Þ. GuSmundsson.
37