Tímarit lögfræðinga - 01.12.1980, Page 15
2.2. Líkamsspjöll, sem ekki leiða til dauða
í 5:1 SkL segir, að sá sem beðið hefur líkamstjón, eigi rétt á skaða-
bótum fyrir
1. sjúkrakostnað og önnur útgjöld,
2. tekjutap,
3. þjáningar og óþægindi, lýti eða annað varanlegt mein (,,men“)
og annars konar óþægindi af líkamsspjöllum.
Samkvæmt 2. mgr. 5:1 SkL skulu bætur fyrir tekjutap nema mis-
mun á þeim tekjum, sem tjónþoli myndi hafa haft, ef tjón hefði ekki
borið að höndum, og tekjum, er hann þrátt fyrir tjónsátvikið hefur
eða hefði átt að hafa eða sem vænta má að hann muni hafa með
vinnu, sem hæfir líkamsþreki hans og hæfileikum og sanngjarnt er
að ætlast til af honum með hliðsjón af fyrri menntun og starfi, endur-
hæfingu, aldri, búsetu og sambærilegum atriðum.
1 3. mgr. 5:1 SkL er sérstakt ákvæði um rétt atvinnurekanda til
bóta fyrir líkamstjón. Einnig segir í 3. mgr., að vinnuframlag við
heimilisstörf jafngildi tekjum.
2.3. Bætur vegna dauða
5:2 SkL mælir svo fyrir, að leiði líkamstjón til dauða skuli greiða
bætur fyrir útfararkostnað, annan kostnað vegna andlátsins eftir því
sem sanngjarnt verður talið, og bætur fyrir missi framfæranda. Regl-
urnar um hverjir eigi rétt til síðasttaldra bóta og um ákvörðun bóta-
fjárhæðar eru efnislega þær sömu og í norsku skaðabótalögunum (sbr.
1.4. kafla hér að framan) með þeirri undantekningu, að í sænsku lög-
unum er tekið fram, að ákvörðunin skuli fara eftir sanngirnismati.
Bæði norsku og sænsku lögin taka fram, að vinnuframlag hins látna
við heimilisstörf skuli metið sem framfærsla.
Eigi eru í 5:2 SkL ákvæði um frádrátt bóta, sem þriðji maður greið-
ir tjónþola. Um það gilda reglur í 5:3 SkL.
2.4. Frádráttur bóta, sem tjónþoli fær frá þriðja aðila
Þégar bætur fyrir missi tekna eða missi framfæranda eru ákveðn-
ar, skal skv. 5:3 SkL draga frá eftirtaldar bætur, sem tjónþoli á rétt
á vegnatjóns síns:
1. bætur frá opinberum skyldutryggingum (almannatryggingum)
skv. nánar tilgreindum lögum og öðrum hliðstæðum skyldutrygg-
ingum,
2. lífeyri eða laun, sem vinnuveitandi greiðir í slysa- eða veikinda-
forföllum skv. ákvæði í vinnusamningi,
209