Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1995, Page 21

Ægir - 01.04.1995, Page 21
6. mynd. Stofnvísitala úthafsrækju á svæðinu Norðurkantur- Héraðsdjúp. 7. mynd. Meðalstærð rækju (fj/kg) í stofnmælingu á svæðinu Norðurkantur- Héraðsdjúp. aukist úr 204 stk. áriö 1988 í 259 stk. árið 1992, en síðan haldist nokkuð stöðugur til ársins 1994 (tafla 5 og 7. mynd). Á Halanum og Rauöa torginu er rækjan yfirleitt álíka stór og jafnvel stærri en rækja á Norðurkanti, Kolbeinsey og í Eyjafjarðarál. Hlutfall kvendýra Eins og kunnugt er skiptir rækjan um kyn þegar hún hef- ur náð nægjanlegri stærð. Unga rækjan er þannig öll karl- dýr og kvendýrin eru sambærileg við hrygningarstofn hjá fiskum. Hlutfall kvendýra eftir svæðum er sýnt í töflu 6. Hæst er hlutfallið á nyrstu svæðunum og oftast líka í Eyja- fjarðarál, eða 22,8% að meðaltali fyrir öll árin 1988-1994. Hlutfallið var hæst árið 1989, 32,4% en eftir það hefur hlutfallið verið lægra. Á öðr- um svæðum fyrir norðan land er hlutfall kvendýra lægra, eða 14% að meðaltali fyrir öll árin. Þar hafa hlut- föll kvendýra líka fallið lítil- lega á því tímabili sem stofn- mælingin nær yfir. Hlutfall kvendýra er lægst í Bakka- flóadjúpi og í Héraðsdjúpi, þ.e. 12,2% fyrir öll árin. Líkt og á hinum svæðunum hefur hlutfallið lækkað frá því at- huganir hófust. Þegar öll svæðin, þar sem stofnmælingin hefur farib fram óslitiö í 7 ár, eru vegin saman kemur fram að kven- dýrin eru rúm 16% að meðaltali öll árin. Hlutfall kvendýra var þó hærra í byrjun, eða um 20 og 19,7% árin 1988 og 1989, en þetta hlutfall lækkaöi því næst niður í 16,2% árib 1990 og áfram í 14,5% árið 1991 (tafla 6, 8. mynd). Eftir þab hefur hlutfallið verið nokkuð jafnt. Á sama tíma hefur stofnvísitala rækju á þessu svæbi hækkab úr 39 og 33 á ár- unum 1988 og 1989, í 70 árib 1991 og verið 53, 62 og 69 árin 1992, 1993 og 1994 (6. mynd). Þannig er heildarfjöldi kvendýra ekki svo lágur heldur hefur karlrækju fjölgað mun meira en kvenrækju á undanförnum árum. Hlutfall kvendýra á Halanum var mishátt, eða 15,8-39,7% og hæst árið 1993. Mun lægra hlutfall kvendýra er á Rauða torginu, eða 18,2% að meðaltali. Hlutfall kven- dýra var þó hæst þar árib 1994 , eða 27,4%. 8. mynd. Hlutfall kvendýra (%) í stofnmællngu úthafsrækju á svæðinu Norðurkantur-Héraðsdjúp. Tafla 5 Fjöldi per kíló veginn með vísitölu hvers tilkynningarskyldureits í stofnmælingu úthafsrækju Svæöi/ár 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 Meöaltal Norðurkantur, Kolbeinsey og Eyjafjaröaráll 161 154 180 171 166 181 183 171 Sporbagrunn, Skagafjarðardjúp, Grímsey-Langanesdjúp 239 255 241 249 293 273 297 264 Bakkaflói og Héraðsdjúp 270 253 235 269 325 258 345 279 Norðurkantur-Hérabsdjúp alls 204 216 209 212 259 234 255 227 Hali 150 160 161 157 Rauba torgið 162 162 164 130 166 157 Tafla 6 Hlutfallslegur fjöldi kvendýra (%) veginn með vísitölu hvers tilkynningarskyldureits í stofnmælingu úthafsrækju Svæbi/ár 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 Mebaltal Norðurkantur, Kolbeinsey og Eyjafjarðaráll 24,7 32,4 20,1 18,9 25,7 18,9 18,7 22,8 Sporðagrunn, Skagafjarðardjúp, Grímsey-Langanesdjúp 17,6 15,5 13,5 11,8 14,5 12,0 13,0 14,0 Bakkaflóadjúp og Héraðsdjúp 14,6 14,7 12,6 11,4 9,8 13,7 8,7 12,2 Noröurkantur-Héraðsdjúp alls 20,0 19,7 16,2 14,5 15,5 14,4 13,7 16,3 Hali 15,8 39,7 22,5 26,0 Rauða torgib 11,2 16,5 16,5 19,6 27,4 18,2 ÆGIR APRÍL 1995 21

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.