Ægir - 01.04.1995, Síða 35
Ólafur Thorlacius kortagerðarmaður:
„Starf kortagerðarmanns felst í því að
taka við mælingum í talnaformi og
breyta talnaflóðinu, fyrst í uppkast og
síðan í endalegt sjókort."
Haukur Sigurðsson deildarstjóri í sjó-
kortasölu: „Mitt aðalstarf er að selja
sjókort og annað sem stofnunin gefur
út auk þess að sjá um tilkynningar til
sjófarenda og færa leiðréttingar inn í
kortin."
Hilmar Helgason skipstjóri og deildar-
stjóri: „Mitt starf er að stýra mælinga-
bátnum Baldri á sumrin en á veturna
vinn ég við tölvur við úrvinnslu gagna
sem við öflum. Ég hef verið sjómaður
í 25 ár.“
fjöldi starfsmanna hefur verið svipaöur síöastliöin 20 til 30
ár."
í ljósi þess hve gamlar sumar þær mælingar em sem sjó-
kortin byggja á, hafa nýjar mælingar leitt í ljós gloppur eða
frávik í kortunum?
„Það eru fyrst og fremst eyður. Þær upplýsingar sem eru í
kortunum eru yfirleitt réttar en það var langt á milli mæli-
punkta og því getum við í dag rekist á grunn sem er alls
ekki á kortinu.
Strandlengjan eins og hún birtist okkur á sjókortum er
rétt svo langt sem það nær."
Það tekur um það bil tvö ár aö gera sjókort eftir að mæl-
ingar hafa farið fram. Nú hefur fyrsta sjókortið af nágrenni
Tjörness og Skjálfandaflóa byggt á nýjum mælingum litið
dagsins ljós. Kort af Skagafirði og Húnaflóa er í burðarliðn-
um. Að sögn Róberts er ákveðin forgangsröð í gangi við
kortagerð og þá einkum tekið tillit til þess hve mikil umferb
hve stórra skipa er um svæbib. Forgangsröðin er meb þeim
hætti að þó Breiðafjörður sé þakinn óteljandi eyjum, hólm-
um og skerjum er lítil umferð um hann nema á smærri
skipum þaulkunnugra heimamanna og því ekki talið til
vansa þó nákvæmar mælingar og sjókort vanti.
Brýnt þótti orðið ab fá nýtt kort af Tjörnesi og Skjálfanda
og ekkert nothæft sjókort var til af Skagafirði þar sem Sauð-
árkrókur og fleiri stabir eru vaxandi útgerbarbæir.
Hve langan tíma tekur að gera sjókort af allri strand-
lengjunni?
„Því er erfitt að svara," segir Róbert, „við stefnum að því
að ijúka gerð 1:100.000 korta um aldamót. í þessa seríu
vantar kort af tveimur svæðum við ströndina. Annars vegar
er þetta svæðið frá Borgarnesi vestur að Súgandafirði. Hins-
vegar er svæðið frá Hornafirði, vestur að Ingólfshöfða. Af
þessum svæbum eru aðeins til gömul yfirsiglingakort."
Nú er staðan þannig ab nýjum mælingum er lokiö frá
Hraunhafnartanga vestur á miðjan Húnaflóa. Næsta verk-
efni er að mæla frá Breiðdalsvík í austri vestur að Ingólfs-
höfða. Það mun taka næstu tvö til þrjú ár meb aðstoð frá
varðskipi.
í ljósi þess að á stórum svæðum rétt utan við ströndina
er sjávarbotninn kortlagður með gömlum, strjálum hand-
lóðsmælingum frá síðustu öld má líkja starfi Sjómæling-
anna við leiðangra landkönnuða. Á hátíðastundum segja ís-
lendingar: Föðurland vort hálft er hafiö. Þetta má vera rétt
en nú er loks hafin kortlagning sem gerir íbúunum kleift að
þekkja föðurland sitt til hlítar. □
<
RKS
GASSKYNJARAR
■
FYRIR FREON OG AMMONÍAK
SPARNAÐUR
UMHVERFIS-
VÆNT
ÍSLENSKT
HUGVIT
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
Gasskynjararnir eru til þess að gera viðvart um leka í
fyrsti- og kælikerfum. Þeir eru gerðir íyrir erfiðar
aðstæður og henta vel í t.d. frystihúsum og
frystitogurum.
Þeir spara tíma, fé og fyrirhöfn
<
RKS Skynjaratækni
Borgarflöt 27 - 550 Sauðárkrókur
S: 95-36054 - Fax: 95-36049
ÆGIR APRlL 1995 35