Ægir - 01.06.1995, Page 11
tunglastaðsetningu í staðinn. Það var nokkuð flókin vinna
en það er alveg hægt."
Hvað er skylt með Björku Guðmundsdóttur og fisk-
veiðitölvum
Það má segja að í þessu verkefni Guðlaugs mætist tvær
ólíkar atvinnugreinar sem báðar henta vel til útflutnings.
Þetta eru fiskveiöar annars vegar og dægurtónlist hins vegar.
Guðlaugur er einn meðhöfunda Bjarkar Guðmundsdóttur á
metsöluplötu hennar Debut og stefgjöld af því verkefni hafa
komið sér vel við tímafrekt grúskið við plotterþýðingamar.
„Það er engin spurning að þetta getur verið útflutnings-
vara. Við vitum um mörg tilfelli þar sem skip eru með tvö
sett af tækjum í brúnni, eldri og yngri, beinlínis vegna þess
aö ekki hefur verið hægt að flytja upplýsingar á milli," segir
Reynir.
Áhuginn fyrir hendi
„Þetta er ekki séríslenskt vandamál. Skipstjórar um allan
heim hafa verið að bíða eftir lausn eins og þessari. Við vit-
um hins vegar iítið um undirtektir því þetta er glænýtt á
markaðnum og hefur lítið sem ekkert verið kynnt ennþá. Við
erum hins vegar þegar búnir að leysa svona verkefni fyrir
nokkur íslensk skip. Það spyrst fljótt út að þetta sé hægt og á-
huginn sem við verðum varir við sýnir glöggt þörfina."
Með því að nýta sér þessa aðferð til gagnaflutninga geta
útgerðarmenn sparað sér verulegt fé auk þess að halda áfram
að nýta eldri ómetanlegar upplýsingar.
„Það þarf varla að taka fram að við heitum viðskiptavin-
um okkar algjörum trúnaði," segir Reynir en í plotternum
eru einatt fólgnar verðmætar upplýsingar um veiði-
slóðir og góða veiðistaði. Oft eru þetta upplýsingar
sem eru á fárra vitorði og stundum er það aðeins einn
skipstjóri sem lumar á leyndarmáium. Þess vegna þarf
að gæta fyllstu leyndar.
Flytur skipstjóra inn í nútímann
„Það má segja að með þessum gagnafiutningum
geti skipstjórar flutt sjálfa sig inn í nútímann."
Með því aö taka upplýsingar úr plotternum og færa
á tölvutækt form gefst líka færi á að skoða þær í hvaða
tölvu sem er. Þannig geta skipstjórar verið með veiði-
slóðirnar í sinni heimilistölvu og lagt á ráðin um feng-
sæla veiðiferð þegar þeir eru í fríi.
IceMac er fimm ára gamalt fyrirtæki sem hefur
einkum selt nýjar og notaðar fiskvinnsluvélar og tæki.
Einnig hefur fyrirtækið selt færanleg frystihús í gám-
um sem farið hafa víða um heim. Fyrirtækið hefur
unnið nokkuð að ýmissi nýsköpun í samvinnu við
fleiri uppfinningamenn og Reynir Arngrímsson segir
að draumur þeirra sé að setja upp nokkurs konar
vinnustofu fyrir uppfinningamenn þar sem þeir
fengju tækifæri til að þróa hugmyndir sínar. En það
bíþur betri tíma. □
MITSUBISHI
RAFSTÖÐVAR
MITSUBISHI diesel-
vélarnar taka mun
minna pláss en
flestar aörar vélar-
tegundir, sé miðaö
við afköst þeirra.
SPARNEYTINN OG TRAUSTUR AFLGJAFI
MDVÉLAR HF.
HVALEYRARBRAUT 32 • PÓSTHÓLF 209 • 222 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565-0020 • TELEFAX: 565-0022
BARKIHF.
NYBYLAVEGI 22 • 200 KOPAVOGI
SÍMI: 554 6499 • FAX: 554 6401 / 554 2285
SJÓKRANAR
LANDKRANAR