Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1995, Blaðsíða 25

Ægir - 01.06.1995, Blaðsíða 25
Afla landað til áframhaldandl útflutnings Fiskifélag íslands áætlar að afli erlendra skipa árið 1995 sem lagður var á land á íslandi til áframhaldandi útflutnings (transit) hafi verið sem hér segir (óslægður fiskur í tonnum): Rækja 5.048 Karfi 25.896 Þorskur 8.051 Ýsa 115 Grálúða 32 Annað 57 Samtals 39.199 Hér að neðan sést áætluð skipting þessa afla á skip eftir því hvaðan þau eru og fjöldi landana: Fjöldi Fjöldi skipa landana Rússnesk skip 20 43 Grænlensk skip 14 30 Þýsk skip 6 20 Norsk skip 5 6 Dönsk skip 2 9 Færeysk skip 6 17 Önnur skip 5 15 Samtals 58 140 Veruleg aukning milli ára Þórarinn er nú að skoða árið 1993 með það fyrir augum að fá samanburð milli ára. í ljós kemur að árið 1993 var landaö hér 20.089 tonnum til flutnings áfram. Samtals 57 skip komu hingað 87 sinnum og má af þessu sjá að umsvif í þessu hafa aukist veru- lega. Leiða má rök að því að 1994 hafi tekjur af transit-afla verið mun meiri því þær eru mjög tengdar aflamagni sem jókst verulega milli ára. Eru þessar tölur tæmandi? „Ég hef nú unnið nógu lengi við skýrslu- gerð af þessu tagi til þess að ég læt nægja að segja að þaö veit enginn betur." Rússarnir að fara? Það sem af er árinu 1995 hefur komið merkjanlegur afturkippur í landanir rúss- neskra togara hér til vinnslu. Enn er ekkert vitað um landaðan afla til flutnings áfram en af þessum tölum má vera ljóst að hér er eftir talsverðu að slægjast. „Viðhorf manna hefur mikið breyst," seg- ir Þórarinn. „Mér sýnist fyrirtæki í vaxandi mæli leggja sig fram um að laða þessi við- skipti hingað en fyrst í stað gætti nokkurra fordóma." Afli hentifánaskipa rýr Þórarinn hefur tekið saman tölur um annan athyglisverðan þátt í fiskveiðum ís- lendinga en það eru tölur um afla hentifána- skipa, bæði þann afla sem þessi skip landa hérlendis til vinnslu og einnig afla sem þau hafa landað erlendis. Listinn yfir landanir hentifánaskipa til vinnslu hérlendis árið 1994 er forvitnilegur en samtals lönduðu þessi skip 10.241 tonni hér að verðmæti 276.692 milljónir króna. Alls lönduðu ellefu hentifánaskip afla til vinnslu innanlands á árinu. Þorskur var tæplega helmingur af magninu, eða 4.000 tonn, en stóö undir stærstum hluta verð- mætisins, eða 237.498 milljónum króna. Þegar talað er um hentifánaskip er átt við skip sem skráð er undir eriendum fána en er að mestu eða öllu leyti í eigu íslendinga. Skipin á þessum lista eru í stafrófsröð Ammasat, Akraberg, Arnarnes, Óttar Birting, Hágangur I og II, Siglir, Arctic Eagle, Fis- herman, Vydunas og Rex. Þess ber að geta að sum þessi skip eru nú komin undir ís- lenskt flagg svo þeim hefur fækkað nokkuð. Til viðbótar þessu lönduðu Rex, Arctic Eagle, Fisherman og Arnarnes einu sinni hvert erlendis á árinu 1994 en Hágangarnir, Óttar Birting og Siglir lönduðu öllum sínum afla hér heima. Rétt er að geta þess að Þórarinn lét ekki blaðinu í té nöfn skipanna, aðeins tölulegar Hvert skip sem landar afla hér til áfram- haldandi útflutnings skilar ab lágmarki 12-14 milljónum króna í þjóöarbúið. • Þessi skip kaupa m.a. olíu fyrir rúmar 700 milljónir, fragt fyrir rúmar 550 milljónir. Umsvif á þessu sviöi aukast stöhugt. Þaö sem af er árinu 1995 er merkjanlegur afturkippur í löndunum rússneskra togara til vinnslu hér. Afli „íslensku" hentifánaskipanna viröist rýr og útgerö þeirra viröist ganga brösulega. Fyrirtæki leggja sig í vaxandi mæli fram um aö laða þessi viðskipti hingað. KOSTUR FYRIR SKIP OG BÁTA Alltá einum staö: Matvörurog hreinlætisvörur fyrir skip. Kjötá heildsöluveröi. Skipaverslunin - Sérverslun sjómanna. NÝI LISTINN KOMINN HRINGBRAUT 121 • 107 REYKJAVÍK SÍMI/TEL. 562-5570 • TELEFAX 562-5578 ægir 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.