Ægir - 01.06.1995, Síða 12
SJÁVARSÍÐAN
VIÐ NÁNARI ATHUGUN
Horfir illa með humarinn
Þaö horfir illa meö humarveiöar á vertíöinni sem nú er nýbyrjuö. Afli á togtíma
mælist afar lítill sem er uggvænlegt í ljósi þess aö fyrstu vikurnar á vertíöinni eru
jafnan þær bestu vegna mikils þörungagróðurs. Ástandið á miöunum er slæmt
vegna mikils ágangs annarra veiðarfæra utan humarvertíðar og Sólmundur T. Ein-
arsson fiskifræðingur lét þau orö falla eftir rannsóknarleiðangur að grípa yröi til
róttækra aðgeröa ef ekki ætti illa að fara.
Það má segja að nú þegar hafi verið gripið til róttækra aðgerða þar sem Hafrann-
sóknastofnun leggur til í skýrslu sinni að upphafsafli á fiskveiðiárinu 1995/1996
verði 1.500 tonn og gerð verði lokatillaga um aflamark eftir athuganir á gögnum frá
yfirstandandi vertíð. Úthlutað hefir verið kvóta á yfirstandandi vertíð sem nemur
2.200 tonnum sem er nálægt kjörsókn. Árið 1994 var heimiiuð veiði á 2.400 tonn-
um af humri. 56 bátar stunduðu veiðarnar og heildaraflinn varð 2.238 tonn sem er
nokkru minna en árið 1993 þegar veiddust 2.381 tonn. Afli á togtíma 1994 var að-
eins 38 kíló samanboriö við 51 kíló árin 1993 og 1992.
í skýrslu Hafrannsóknastofnunar er getum leitt að því að dræm aflabrögð á ver-
tíöinni 1994 eigi rót sína aö rekja til þess að veturinn áður voru í fyrsta sinn leyfð-
ar tilraunaveiðar á humri að vetrarlagi. Þær þóttu ekki gefa góða raun.
Sé litið á verðþróun á humri kemur dökk mynd í ljós. Síðustu fjögur ár hefur
aflinn verið á bilinu frá 2.157 tonn (1991) til 2.381 tonn (1993). Aflaverömætið
hefur lækkað jafnt og þétt en heildverömæti humaraflans var 606.5 milljónir 1991
en 475.9 milljónir 1994. Samdrátturinn nemur um 28%.
Veiðarnar 1994 gengu einkum illa við suðvesturhorn landsins á miðum undan
Reykjanesi og á Selvogsbanka. Árgangar sem taldir eru vera frá 1984 og 1985 eru
mjög sterkir og þeirra fór að gæta í veiðinni þegar um 1990. í kjölfar þessara tveggja
árganga virðist sem nýliðun í humarstofninum hafi hrakað verulega og bendir flest
til þess að árgangarnir frá 1986-1989 séu undir meðallagi og þar af séu árgangarn-
ir 1987-1989 þeir lélegustu frá upphafi rannsókna.
Vegna alls þessa reiknast humarstofninn heldur minni en gert haföi verið ráð
fyrir í síðustu skýrslu Hafró. Verði aflinn 1995 í samræmi við kjörsókn, sem þýðir
um 2.000 tonna landaðan afla, mun veiðistofn humars vaxa lítið eitt 1997 og 1998,
Veiðistofninn er nú talinn tæp 12 þúsund tonn en var stærstur um 16 þúsund
tonn 1980-1982. Verði á þessu ári landað 1.500 tonnum, sem væri mjög mikill
aflasamdráttur, yxi veiðistofn nokkuð ört og veiðidánarstuðlar yrðu í samræmi við
það sem þeir hafa verið bestir. Verði aflinn hinsvegar 2.500 tonn minnkar veiði-
stofninn og dánarstuðlar fara verulega fram úr kjörsókn.
Það er því ljóst að
humarveiðimenn
verða að herða sultar-
ólina á þessari vertíð
þar sem bæði minni
afli og lægra verð
blasir við þeim.
Myndin hér til hliðar
sýnir magn og verð-
mæti humar afla
sl. ára.
ANNALL
■■ A aðalfundi Útgerðarfélags
Hfl Akureyringa kemur fram að
félagið jók afla sinn um 900 tonn
milli ára og aflaði alls 21.700
tonna. Verðmæti hvers kílós í
vinnslunni jukust um 9% milli
ára og aldrei hefur verið fryst
jafnmikið í sögu félagsins.
WH Ákveðið að framlengja
Wm1 rækjuvertíð í ísafjarðardjúpi
um eina viku. Ástæðan er treg
veiði vegna slæmra gæfta og tíðra
skyndilokana og vantaði 200
tonn á úthlutaðan kvóta 1. maí.
Árið 1994 varð metár í
framleiðslu Sölumiðstöðvar
hraöfrystihúsanna. Alls voru
framleidd 117.700 tonn og jókst
framleiðslan úr 103 þúsund tonn-
um árið áður. Þetta er aukning
um 16%. í fyrsta skipti í sögu
samtakanna vógu karfaafurðir
þyngra en þorskafurðir í sölu.
VB Gunnar Tómasson í
Kfl Grindavík og Auðunn
Karlsson í Súðavík koma nýir inn
í stjórn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna.
V9| Þegar Smuguveiðar ársins
Kfl 1994 eru gerðar upp kemur
í ljós aö Mánabergið frá Ólafsfirði
hafði mest verðmæti upp úr krafs-
inu, eða rúmar 100 milljónir fyrir
1.156 tonn. Hegranesið kom með
mestan afla úr Smugunni, alls
1.232 tonn.
Norsk-íslenski síldarstofn-
inn gengur óðfluga í vestur
og vart verður við mikið magn í
Síldarsmugunni svokölluðu.
■M í ljós kemur að eigendur 35
Kfl fiskiskipa, sem fengið
höfðu úreldingarloforð, hafa hætt
við úreldingu. Þróunarsjóðurinn
hafði lofað 1,4 milljarði í styrki til
úreldingar téðra skipa en meðal
þeirra voru ný og glæsileg skip
sem mörgum þótti eftirsjá að.
■PV Nokkur íslensk skip hefja
síldveiðar í Síldarsmugunni
og færeyskri lögsögu og mokfiska.
12 ÆGIR