Ægir - 01.06.1995, Síða 48
var unniö að rann-
sóknum á árstíða-
breytingum bæði í
þorski og kræklingi.
Um klórlífræn
efni má segja að þar
koma upp ný vanda-
mál. Það á við um
flokk efna sem kall-
ast toxafen og tók
við af skordýraeitr-
inu DDT í kringum
1970.
Vandinn er sá aö
það er ekki einfalt
mál að afla upplýs-
inga um mengun af
völdum toxafens.
Þetta er flókin súpa
af efnum sem erfitt
er að greina sundur
og oft í mjög lágum
styrk. Efnagreining-
artæknin er þarna
flókið og erfitt
vandamál sem er þó
er hægt að ráða við."
Blýmengun hefur fariö minnkandi
Erum við sem búum á norðurhveli jarðar ekki varnarlaus
gegn mengun sem berst með ýmsum leiðum til okkar og
safnast fyrir á norðurhveli eins og þessi toxafen-mengun og
PCB-efnin?
„Það hefur náðst samkomulag um að hætta notkun á PCB.
Það er hins vegar afar erfitt ab eiga við efni sem berast um
loftveg. Blý t.d. finnst í meira magni hér í Noröur-Atlantshafi
en í Norður-Kyrrahafi því það berst hingab með loftstraum-
um. Blýbensín hefur verið stærsta uppspretta blýmengunar
en notkun þess hefur farið minnkandi.
Blý er eitt þeirra efna sem er afar erfitt að greina í sjó. Það
má segja að vegna framfara í mælingartækni séu allar niður-
stöður um blý eldri en frá 1980 ónothæfar og sama á við um
mörg önnur efni. "
Eru íslendingar vel búnir á þessu sviði?
„Hvað blý varðar höfum vib grundvallartækjabúnað sem
dugar en leggja þarf vinnu í aðferðafræðina við mælingarnar.
Þetta er ekki eins og ab hægt sé aö setja sjósýni í tækið og fá
niðurstöður eftir fimm mínútur.
Eitt stærsta viðfangsefnið í alþjóblegum verkefnum er
hvernig eigi að mæla hlutina og tryggja aö niðurstöður frá
ólikum þjóðum séu sambærilegar. Það hafa heilu verkefnin á
sviði mengunarmælinga farið meira og minna í vaskinn
vegna þess að mælingar þátttökuþjóðanna voru ekki sam-
bærilegar. Þetta getur
þýtt að mengun í sjó
mælist aöeins á þeim
svæðum þar sem
ástandið er svo
slæmt að mælingarn-
ar verða óyggjandi.
En þekking á út-
breiðslu og magni
mengandi efna í sjó
og lífríki sjávar hefur
batnað vegna fram-
fara hjá tækjafram-
leiðendum og vegna
þess að margir mjög
hæfir efnafræðingar
hafa komið fram
með nýjar abferðir
og ný vinnubrögö."
Okkar mælingar í
hæsta gæðaflokki
íslendingar hafa um
nokkurt skeið verið
þátttakendur í al-
þjóðlegu verkefni
sem lýtur að gæðastjórnun í vöktun sjávar.
Hafrannsóknastofnun og Rannsóknastofnun fiskibnaðar-
ins eru þátttakendur í verkefninu. í stórum dráttum fer verk-
efnið þannig fram að sams konar sýni em send tii allra rann-
sóknastofanna og niðurstöðurnar eru síðan bornar saman.
Hvernig hafa íslendingar stabið sig?
„Við höfum lengi unnib eftir viðurkenndum aðferðum á
þessu sviði. Til dæmis eru PCB-mælingar sem gerðar eru á
Rannsóknastofnun fiskiðnabarins í hæsta gæðaflokki."
Nú lýsir þú ástandinu þannig að hluti hættulegrar meng-
unar séu efni sem safnast fyrir á norðurhveli jaröar og eru
komin frá þjóðum sem búa yfir ófullkomnu eftirliti á þessu
sviöi. Gerir ólikt viðhorf þjóða forvarnir á þessu sviði ekki erf-
iðar?
„Jú, þaö getur verið mjög erfitt. Sumar þjóðir geta þess
vegna verið að framleiða og nota DDT og slík efni án þess að
vib vitum það. En vib veröum að vera á verði áfram þó verk-
efniö virðist flókið.
Það er afar mikilvægt að niðurstöbur rannsókna séu áreið-
anlegar því þær verða grundvöllur að mati á ástandi umhverf-
isins. Því má ekki slaka á klónni í kröfum til gæða mælinga á
sýnum úr sjó, fersku vatni, lífríki eða lofti.
Starf á vegum fyrrnefndra alþjóblegra sáttmála felst einnig
í samantekt á niburstöðum á svæðum sáttmálanna, þar meb
talin hafsvæöi bæbi sunnan íslands og nörðan. Þessar
ástandsskýrslur verða birtar á næstu árum og að þeim veröur
ab vinna á markvissan hátt og gæta þess ab þær verði byggð-
ar á traustum gögnum." □
l/Sk | Ólafsson, haffræðingur á Hafrannsóknastofnun, telur að
U V/11 þrátt fyrir áróður sé umgengni sjómanna um hafið enn veru-
lega ábótavant. Rusl safnast á fjörur og veldur skaða í lífríkinu.
„Netadræsur og annað slíkt er afar hættulegt siglingum og drepur fugl
og fisk.“
48 ÆGIR