Ægir - 01.04.1997, Page 5
Endurnýjun fiskimjölsverksmiðjanna hröð um þessar mundir:
Endurbætt verksmiðja í
Bolungarvík í gang í júlí
framleiðslugetan eykst um helming
„Vib stefnum af) því ab taka verk-
smiðjuna í gagnið í júlí næstkom-
andi," segir Einar Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri hjá Gná hf. í Bolungar-
vík en fyrirtækib hefur ákveðib að
ráðast í endurbætur á loðnuverk-
smibju og skipa sér þannig í hóp
þeirra fiskimjölsverksmibja sem geta
framleitt hágæbamjöl. Við þetta eykst
framleiðslugeta verksmiðjunnar um
nálega helming frá því sem ábur var.
Einar segir að nýr þurrkari í verk-
smiðjuna komi í maí en þegar er byrjað
að vinna að breytingum í verksmiðj-
unni sjálfri. Gná keypti fyrir tveimur
árum tvo gufuþurrkara frá Danmörku
en þeir leystu af hólmi gamlan eld-
þurrkara sem nú verður tekinn úr verk-
smiðjunni og nýja þurrkaranum komið
fyrir í hans stað.
Tímaritið ÆGIR:
Nýi búnaðurinn er að því leyti sér-
stakur að þurrkarinn er ekki loftþurrk-
ari heldur „vacum" þurrkari af Atlasgerð
og er ekki búnaður af þessu tagi í notk-
un hjá öðmm hérlendis. Einar segir ab í
Danmörku noti nær allar verksmiðjur
búnab af þessu tagi og hann skili fylli-
lega sambærilegu hágæðamjöli á við
loftþurrkarana.
leiöslugetan um helming en hún var
ábur 250-300 tonn á sólarhring.
Á nýafstaðinni vetrarvertíð tók Gná
á móti um 17.000 tonnum af loðnu en
á síðasta ári í heild um 35.000 tonn.
Fiskimjölsverksmiðjan í Bolungarvík
var upphaflega tekin í notkun árið 1963
en Gná hf. hefur rekiö hana frá 1993 og
á þeim tíma hefur margt verið endur-
bætt í verksmiðjunni.
Héðinn hf. í
Garðabæ mun koma
að framkvæmdunum í
Bolungarvík en verður
þar í samstarfi við
heimaverktaka. Einar
segir að verkefnið kosti
250-300 milljónir
króna en við þessar
breytingar aukist fram-
lilboð til nýrra áskrifenda
i tilefni þess að nú kemur út 90. árgangur tímaritsins ÆGIS
er nýjum áskrifendum að tímaritinu gert sérstakt afmælistilboð
sem felur í sér áskrift að blaðinu og fylgiriti þess, Útvegstöl-
um, sem og að fá Kvótabókina sem kemur út í október næst-
komandi. Bókin inniheldur ítarlegar upplýsingar um kvótaút-
hlutun fiskveiðiársins. Allt þetta fæst fyrir aðeins 466 kr. á
mánuði og þeir sem gerast áskrifendur fyrir 1. júní fá að auki
Sjómannaalmanak 1997, geymslubox með gyllingu á kili fyrir
þennan afmælisárgang ÆGIS og Útvegstalna á 1000 kr. og
15% aflsátt af Útvegi 1996. Þá fá allir skuldlausir félagsmenn
í deildum Fiskifélagsins 10% afslátt af öllum viðskiptum við
félagið og útgáfufélag þess.
Ráóningarþjónusta
Sjávarútvegsins
Erum með á skrá hjá okkur:
F iskiðnaðarmenn
F ramkvæmdastj óra
Handflakara
Háseta
Matsveina
Matvælafræðinga
Skipstjóra
Stýrimenn
Vélaverði
Vélfræðinga
Vélstjóra
Sjómenn - vinsamlegast
hafið samband og látið
skrá ykkur
Ráðningarþj ónustan
Háaleitisbraut 58-60, 108 Rvík.
Sími: 588 3309 Fax: 588 3659
Netfang: radning@skima.is
ÆGIR 5