Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1998, Page 9

Ægir - 01.12.1998, Page 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI Dómur Hœstaréttar í byrjun des- ember, kvótadómurinn sem svo er kallaður í daglegu tali, hefur valdið meira umróti í umrasðu um sjávarút- vegsmál en itokkuð annað atriði síð- an kvótakerfmu var komið á. Fjölda- margar hliðar eru á málinu og í raun fleiri spurningar sem vakna en svör sem fást. „Við verðum að reyna að meta núna hvaða áhrif þessi dómur hefur og kannski ekki síður hvort þetta skapar einhverja nýja möguleika," segir Guð- brandur Sigurðsson, forstjóri Útgerðar- félags Akureyringa, vegna málsins. í hans huga tengist þetta mál óhjá- kvæmlega úthlutun veiðiheimilda og hann segir marga í greininni horfa mjög til auðlindanefndarinnar og nið- urstöðu hennar. „Það gerjast í mörgum að nú sé kominn tími til að setjast niður og ná sáttum í þessum deiluefnum. Menn sjá vonir í því að niðurstaða auðlinda- Titringur í kjölfar kvótadómsins nefndarinnar skapi möguleika til að setjast niður og reyna að skapa um- hverfi sem allir væru sátti við. Það þýð- ir ekkert að hafa það á bakinu árið út og árið inn að þeir sem vinni í sjávar- útvegi séu úthrópaðir sem vondir menn. Það er tap fyrir alla að hafa sí- fellda togstreitu og óróa," segir Guð- brandur. Upphafið að breytingum Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands íslands, telur að kvótadómurinn marki upphaf á ferli sem enda muni með breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu. „Mér og mínum ráðgjöfum sýnist að dómurinn taki bæði til veiðileyfis og kvóta. Ég sé ekki að það sé hægt að draga línu í milli veiðileyfis og úthlut- unar á kvóta. Miðað við tillögur ríkis- stjórnarinnar þá halda vandræðin bara áfram," segir Sævar en hann segist ekki sjá þá lausn framundan að öllum landsmönnum verði úthlutað fisk- veiðikvóta. „Ég hef sett fram þær hugmyndir að kvótanum verði endurúthlutað til þeirra sem hafa verið að veiða síðast- liðin þrjú til fjögur fiskveiðiár. Þar með væri hætti að taka viðmiðun við ein- hverja sem voru með skip fyrir 15 árum síðan. Aukning gæti komið með sama hætti eða farið á frjálsan kvóta- markað. Mín skoðun er sú að nú verði óhjákvæmilegt að gera gagngerar breytingar - en það getur tekið tvö ár ef ég þekki dómskerfið okkar rétt," seg- ir Sævar. Sóknardagakerfið ekki varið Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda, segir óhjá- kvæmilegt að allir trillukarlar verði kvótasettir að afloknu yfirstandandi fiskveiðiári. Miðað við 9 tonna þorskúthlutun á bát í aflamarkinu, eins og nú er, sjái hver maður að gríðarleg fækkun smábáta muni eiga sér stað. „Sóknardagakerfið verður ekki varið samkvæmt hæstaréttardómnum. Það mun koma hastarlega við margar byggðir og atvinnutækifæri í landinu, það er augljóst," segir Örn. ------------------NGm 9 I'orgeir Baldursson

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.