Ægir - 01.12.1998, Side 10
Hvaða fiskistofnar í norðurhöfum eru nýttir með sjálfbœrum hætti?:
Fyrstu niðurstöður
Alþjóða hafrannsóknarráðsins
væntanlegar á næsta ári
- Norðurlöndin þiýsta á um alþjóðlega skilgreiningu
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráöherra, segir að á alþjóða vettvangi verði íslendingar að
vinn að því að eyða fordómum ígarð viðmiðana um sjálfbœra nýtingu.
/ umrœðunni unt nýtingu auðlinda
hafsins kemur aftur og aftur upp
hugtakið sjálfbœrar veiðar. Ljóst er
að á alþjóðavettvangi tnunu kröfur
um upplýsingar unt veiðistjórnun og
nýtingu auðlinda fara vaxandi og
þess vegna hefur verið þrýst á Alþjóða .
Iiafrannsóknarráðið að kotna fram
með skilgreiningu á þessu hugtaki
sem luegt verði að nota sem viðmið-
un á alþjóðlegum vettvangi. Fyrstu
niðurstöður um málið eru vcentanleg-
ar frá ráðinu á nœsta ári og mun það
smíast um nýtingu fiskistofna í norð-
urhöfum.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, vék að þessu málefni á Fiski-
þingi og sagði það afskaplega mikil-
vægt til að svarað verði kröfum mark-
aðarins, sem sífellt aukist.
„Við þurfum að geta lagt á borðið
upplýsingar sem duga til að uppfylla
kröfurnar. Ég tel mjög þýðingarmikið
að við byggjum viðmiðanir varðandi
kröfugerð um sjálfbæra nýtingu auð-
linda á líffræðilegum forsendum og
förum ekki að blanda öðrum þáttum
þar inn í. Þetta mál verður að ræðast á
alþjóðlegum vettvangi vegna þess að
viðmiðanirnar þurfa að vera hliðstæð-
ar fyrir allar þjóðir. Annars verða til úr
þessu viðskiptalegar hindranir eða al-
gjörlega marklaus plögg. Fyrir þá sök
hefur þetta mál verið rætt innan
Norðurlanda og á vettvangi ráðherra-
nefndar Norðurlanda sem fjallar um
sjávarútvegsmál. Þar var tekin ákvörð-
un um að fara þess á leit við Alþjóða
hafrannsóknarráðið að það gefi álit á
því hvaða stofnar í norðurhöfum eru
nýttir á grundvelli meginreglunnar
um sjálfbæra nýtingu. Þetta er fyrsta
skrefið í þá átt að fá alþjóðlega viður-
kenningu á afmörkuðu hafsvæði með
óháðu vísindalegu mati og líffræðileg-
um mælikvörðum," sagði Þorsteinn og
bætti við að von sé á svari frá Alþjóða
hafrannsóknarráðinu vegna þessa er-
indis á næsta ári.
Ráðherra sagði að máli um sama
efni hafi verið hreyft hjá Alþjóða mat-
vælastofnuninni, FAO, en þær tilraun-
ir segir hann að ekki hafi skilað ár-
angri. Þar á bæ hafi komið fram mikil
andstaða frá ríkjum Suður-Ameríku
sem óttist að málið sé sett fram til að
b'yggja upp viðskiptahindranir.
„Við þurfum á alþjóða vettvangi að
vinna að því að eyða slíkum fordóm-
urn og verðum að tryggja að málin séu
sett fram með þeim hætti að aðrir
þurfi ekki að óttast viðskiptahindranir.
Einmitt þess vegna höfum við lagst
gegn því að fjölþjóðlegt fyrirtæki geti
haslað sér völl og tekið sér það vald að
setja viðmiðunarreglurnar sem fara á
eftir. Þær reglur teljum við að setja
þurfi af óháðum aðilum sem ekki eru
beinir þátttakendur á markaðnum,"
sagði Þorsteinn Pálsson.
10 NGIR