Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1998, Side 17

Ægir - 01.12.1998, Side 17
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI SD EHfil »1 Flakaverð í hámarki Sú staða sem nú er í verðlagn- ittgn á ftskflökutn hefttr ekki verið uppi síðan 1990," segir Jótt Jóhannes- son, deildarstjóri flakavittttslu SH, vegtta hittita tttiklu verðhœkkatta sent orðið hafa á fisk- flökuiti á árinu 1998. Mikil hækkun á fiskflökum skilar hinum hefðbundnu landvinnslufyrir- tækjum miklum ávinningi. í milliupp- gjörum hefur enda komið fram að þessi fyrirtæki hafa verið að ná mikl- um rekarstrarbata á árinu. Jón segir að á tímabilinu febrúar til október hafi stöðugar verðhækkanir orðið á mörkuðum, meiri þó í Evrópu en Bandaríkjunum. Þetta veldur því að verð á flökum er hærra í Evrópu en verið hefur um sjö ára skeið. Hækkanir eru mismunandi eftir tegundum en eru á bilinu 20-45%. „Núna er ekkert við sjóndeildar- hringinn sem gæti orsakað verðlækk- anir hér á Vesturlöndum. Skýringuna á þróuninni er að finna í minna fram- boði frá Rússum og Norðmönnum og ég býst ekki við að framboð svari eftir- spurn á næsta ári," segir Jón Jóhannes- son Sameining sölufyrirtækja? TÞi it tdja verðtir til markverðustu tíð- ittda ársitts sú unirœða settt upp koin uitdir árslok tiitt hugsattlega sameiningu íslenskra sjávarafurða hf. og Sölumiðastöðvar hraðfrystihús- attna. Vangaveltur um hagræðið af nánara samstarfi íslensku fisksölufyrirtækj- Forstjóri SR-mjöls hf.: Þokkalegt veiðiár anna, jafnvel sameiningu þeirra, hafa oft komið upp á yfirborðið en hvatinn að þreifingum í þessa veru núna er ljóslega erfiðleikar í rekstri íslenskra sjávarafurða hf. Fyrirtækið byggði upp stóra fiskréttaverksmiðju á árinu í Bandaríkjunum og hefur ráðist í mikl- ar fjárfestingar á öðrum markaðssvæð- um. Þótt ekki verði af sameiningu eða samvinnu að þessu sinni er ekki útilokað að viðræður verði teknar upp síðar. oðttatt hefði mátt vera tneiri á stðari hlutanum en í heild kettiur árið þokkalega út," segir Jótt Reynir Magiiússon, forstjóri SR-mjöls hf. Fyrir brœðslurttar skiptir loðnuveiðin mestu máli og sannarlega barst ntik- ið hráefni að landi í fyrravetur en í sumar og haust hefur loðnan lítið látið á sér krœla. „Staðreyndin er hins vegar að af- urðaverð hefur verið mjög hátt á ár- inu, bæði á mjöli og lýsi. Við sjáum þó tákn um að verð fari lækkandi á næstu mánuðum," segir Jón Reynir. Lítil loðnuveiði í haust mun koma fram í afkomutölum verksmiðjanna, að mati Jóns Reynis. „Samt sem áður er verðið hærra en undanfarin ár og í Verksmiðja SR-mjöls í Helguvík. heildina er afkoman góð," segir Jón Reynir. SR-mjöl er nú í árslok að taka í notkun mikið endurbætta verksmiðju á Siglufirði. Þar var varið um 600 millj- ónum króna til breytinga. Sömuleiðis var fjárfest í mjölgeymslu í Helguvík og á Seyðisfirði tók SR-mjöl í notkun geymslusíló og ísverksmiðju. Fyrsta túnfiskveiðiskip íslendinga Útgerð Byrs VE í Vestmannaeyj- um réðst á árinu í fjölþættar breyt- ingar á skipinu í þeim tilgangi að sérútbúa það til túnfiskveiða. Verk- inu í Póllandi seinkaði nokkuð en í byrjun nóvembermánaðar hélt Byr á veiðar, fyrsta sérútbúna túnfisk- veiðiskip landsmanna. Greinilegur áhugi er hjá útgerðarmönnum á veiðunum en enn sem komið er halda aðrir að sér höndum, enda um kostnaðarsamar breytingar á skip- um að ræða ef gera á þau sem best úr garði til túnfiskveiða. ÆGiffi 17

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.