Ægir - 01.12.1998, Síða 30
ráðgjöf, með umhverfismál sem aðal
viðfangsefni. Guðjón leggur mikla
áherslu á að umhverfismál snúist um
að hver og einn byrji á því að taka til í
eigin garði. Fyrirtæki í sjávarútvegi
eigi að byrja á því að líta í eigin barm,
skoða hvaða þættir í starfsem-
inni varða umhverfið, spyrja
sig hvort hægt sé að draga úr
sóun, úrgangi, rafmagnsnotk-
un, vatnsnotkun og þannig
mætti áfram telja. Með vinnu-
brögðum af þessu tagi verði til
tilfinning hjá starfsmönnum
fyrir umhverfismálum og þar
með sé ísinn brotinn.
„Þegar fyrirtæki byrja á
heimavelli þá eru þau að byrja á að
skoða umhverfi sem þau þekkja og hér
eru til öll þau verkfæri sem má nota til
þess að auðvelda sér þessa naflaskoð-
un. Það eru til staðlar sem lýsa stjórn-
kerfum sem hægt er að fá vottuð af
þriðja aðila. Megin markmið þessara
kerfa er að draga úr sóun náttúruauð-
linda á einn eða annan hátt. Þegar
tekið er á sóuninni næst gjarnan fram
beinn sparnaður en því til viðbótar
geta sjávarútvegsfyrirtæki hiotið fjár-
hagslegan ávinning af því að geta sýnt
fram á að þau taki af ábyrgð á sínum
umhverfismálum."
Alþjóðlegar viðmiðanir vantar
Guðjón dregur skýra línu milli um-
hverfisaðgerða fyrirtækja í eigin
rekstri og umræðunnar um sjálf-
bærar veiðar, verndun fiski-
stofna, hreint haf og heilnæmar
fiskafurðir. Hann telur að grunn-
inn verði að leggja í fyrirtækjun-
um sjálfum, hvort heldur eru út-
gerðarfyrirtæki eða fiskvinnslur,
á þeim grunni byggist umræðan
um veiðar, verndun fiskistofna
og heilnæmi afurða.
„Það vantar alla alþjóðlega mæli-
kvarða varðandi veiðar og verndun
fiskistofna. Við íslendingar viljum að
„Grunninn að
umhverfisaðgerðum verður að
leggja í fyrirtœkjunum sjálfum."
Umhverfisáhrif landvinnslu
Leysiefni
- White spirit/þynnir
- Olíuhreinsir
- Smurefni
- Ýmis lífræn leysiefni
Loftmengun
- Koltvísýringur (C02)
- Köfnunarefnisoxið (NOx)
- Brennisteinstvíoxið (S02)
- Sót
- Illa brennt eldsneyti
Sorp
- Lífrænt
- Umbúðir
- Plastkassar
- Öskjur
- Brotamálmar
Hávaði
Lyktarmengun
Orkunotkun
- rafmagn
- heitt vatn
Kalt vatn
- (R-22/R-134a)
- Ammoníak
Frárennsli
- Fita
- Lífrænt efni
- Næringarefni
- 01 ía
- Sápur
Þeir sem reka fiskvinnslur geta fallist á að myndin liti svona út þegar horft er til umhverfisþátta sem tengjast vinnslunni. Hér er ekki
verið að draga upp mynd afhœttulegum efnum heldur er hér aðeins getið um þœtti sem eru mœlanlegir. Þar með er hœgt að koma á þá
böndum til að reyna að draga úir sóun.
30 AGIR
“"(>/ up!gno/QSA