Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1998, Page 55

Ægir - 01.12.1998, Page 55
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Isfélagið hf. með gjörbreytta fiskimj ölsverksmiðj u s /'sfélagið hf. í Vestmannaeyjum hefur tekið í notkun endurbœtta fiskimjölsverksmiðju. Segja má að verksmiðjan hafi verið endurbyggð frá grunni. Eftir breytingarnar getur verksmiðj- an framleitt hágæðamjöl og mengun er í algjöru lágmarki. Mengunarmálið var einmitt þáttur sem taka varð á og að mati forsvarsmanna ísfélagsins skil- ar þessi framkvæmd í heild sinn mun öflugri verksmiðju og traustari í rekstri. Þegar framleitt er í gæðamjöl af- kastar verksmiðjan um 600 tonnum á sólarhring en annars um 900 tonnum. Kostnaður við breytingarnar var um 600 milljónir króna en þá er meðtalið nýtt hús og þorrinn af hinum nýja tækjabúnaði sem í verksmiðjunni er. REVTINGUR Varðskipið kostar um 3 milljarða Nýtt varðskip Islendinga, sem þessa dagana er verið að ljúka hönnun á, mun kosta á bilinu 2,5 til 3 milljarða króna. Skipið verður tekið í notkun eftir um þrjú ár og verður um 3000 tonn að stærð. Ekki hefur enn verið gengið frá því hvernig að smíðinni verður staðið en kappkostað er að hún geti farið frarn hjá innlendum stöðvum. * Vinnuflotgallar: Samfestingur eða jakki og buxur * Gore-Tex® björgunarbúningur * Fóðraðir vatnsheldir kuldagallar * Sjógallar, gúmmíhanskar, beitingarvettlingar, stígvél, vöðlur * RB-krókar, girni, blýsökkur, járnsökkur, gúmmídemparar, sigurnaglar, nælur, goggar * Sjóstangir, veiðihjól, gervibeitur Vatnagörðum 14 Sími 581 4470 • Fax 581 2935 Netfang: rafbjorg@vortex.is Vciðarfæri VGIR 55

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.