Ægir - 01.01.1999, Side 26
finnst karfi nánast ekki og ég óttast að
viö höfum gengið alltof nærri
stofninum. Vib þurfum líka að velta
fyrir okkur hvaða karfi það er sem vib
erum að veiða á Reykjaneshrygg. Er
þetta ekki bara karfi af sama stofni og
vib erum að veiða hér heima? Ef svo er
þá getum við ekki horft framhjá því ab
það eru mörg önnur skip en okkar ab
veiða úr stofninum og sóknin er þar af
leiðandi mjög mikil."
Togaramönnum stillt upp
eins og svindlurum
Guðmundur viðurkennir ab frystitog-
araútgerðum sé legið á hálsi fyrir ab
skapa ekki störf í landi. Hann segir sjó-
mennina á frystitogurunum finna vel
fyrir gagnrýninni í umræöunni.
„Okkur finnst aö spjótin beinist
alltaf aö okkur, rétt eins og viö séum
vandamálið. Fólk talar um eitthvert
svindl og svínarí á frystitogurunum.
Og það er ekki nóg með að umræðan
sé skrýtin heldur sjáum vib líka enda-
lausar reglugerðir og lög sem Fiskistofa
er að framfylgja og virðast snúast um
að í frystistogurnum þurfi að uppræta
eitthvert svindl. Ég er viss um að það
eru engir sjómenn í flotanum sem búa
vib annað eins reglugerðaflóð og
frystitogaramenn. Um þetta get ég
nefnt dæmi. Ef ég tæki til dæmis
ákvörðun um það núna að hífa og fara
í land þá þarf ég að tilkynna til Fiski-
stofu áætlaðan afla um leið og trolliö
er komið upp á dekk. Og síðan þarf ég
aftur að senda tilkynningu til Fiski-
stofu fjórum tímum áður en ég kem í
höfn. Hvaba tilgangi þjónar svona
stíft eftirlit? Kostnaðurinn við allar
reglugerðirnar er mikill og mér finnst
eins og verið sé að reyna að koma á
tortryggni milli okkar togaramann-
anna og Fiskistofu. Halda menn virki-
lega að við græðum eitthvaö á því að
reyna að svindla á aflanum? Mér
finnst fráleitt að halda því fram. Eftir-
litib þarf sannarlega að vera til staðar
en mér finnst menn komnir heldur
langt í því hiutverki," segir Guðmund-
ur.
Eftirlit kostar 15 þúsund á dag
Að sögn Guðmundar gera reglugerðir
kröfu til þess að um borð sé eftirlits-
maður þegar framleitt er í bita. Kostn-
aður við hvern eftirlitsmann um borð
er reiknaöur um 15.000 krónur og
augljóst að mikill kostnaður fylgir því
fyrir útgerbina ab hafa eftirlitsmenn-
ina í skipunum.
„Ég get þess vegna ekki ákveðiö að
fara t.d. á morgun í bitavinnslu.
Ákvörðun um það þarf að liggja fyrir
ábur en látið er úr höfn," segir
Guðmundur Þ. Jónsson.
Vantaruig
límmiða!
Hafðu Há samband
og við björgum
málunum.
Hágæða
límmiða prentun.
MíkÍðúrval al
Thermð miðun
fyrir tölvuprentara.
r
r
Einnig ainiiea
prentun svo sem
Reikningar,
kvittanir,
bæklingar,
fréttabréf,
bréfsefni,
umslög,
nafnspjöld, ofl. ofl.
LÍMMIÐAR NORÐURLANDS
Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri
^Sími 462 4166 • Fax 461 3035
Netfang: limnor@est.is
26 Mm