Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1999, Blaðsíða 16

Ægir - 01.04.1999, Blaðsíða 16
Nýja hafrannsókna- skipinu hleypt af stokkunum Bygging á nýju hafrannsókna- skipi fyrir íslendinga er á áætlun og var skipinu hleypt af stokkunum í Chile þann 17. apríl síðastliðinn. Skipið mun koma á haustmánuðum hingað til lands og bera nafnið Árni Friðriksson. Það kemur til með að gjörbreyta rannsóknum úti á sjó, enda skipið stórt og tæknilega mjög fullkomið. Afleiðingar lítillar loðnufrystingar að koma fram Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyj- um sendi á dögunum frá sér af- komuviðvörun til Verðbréfaþings Islands. Ein af skýringum þess að af- koma á fyrstu sex mánuðum rekstr- arársins stefna í að verða lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir er sú að loðnufrysting brást algerlega í vetur. Við því er að búast að lítil loðnu- frysting muni einnig koma fram í rekstri annarra þeirra sjávarútvegs- fyrirtækja sem byggja mikið á loðnufrystingunni. I sömu afkomuviðvörun Vinnslu- stöðvarinnar er einnig borið við lakari afkomu í mjöl- og lýsis- vinnslu, sem og í vinnslu á bolfiski. Þá er bent á að vegna lækkun á jeni hafi áhrif til hins verra á rekstur fyr- irtækisins. Hvenær er fiskur hollur og hvenær ekki? Frá því var sagt í tímaritinu World fishing í janúar síðastliðnum að markaður fyrir norskan eldislax í Japan kunni að vera í hættu og það vegna veðurfyrirbærisins E1 Nino! Hvernig getur því vikið við að fyrirbærið hafi áhrif á markað fyrir fisk? Jú, þetta margumtalaða veðurfarsfyrirbæri olli aflabresti í Chile og Perú á fiskistofnum sem mjöl og lýsi er unnið úr. Verð þessara afurða hækkaði gríðarlega og í sparnaðarskyni tóku fóðurframleið- endur að blanda jurtaolíu í fóður handa eldisfiski í Noregi í stað lýsis. í henni er minna af Omega-3 fitusýrum en í lýsi og þar með minna af Omega-3 í laxinum sem alinn er á fóðrinu. Þessar fitusýrur eru taldar hollar fyrir hjarta og blóðrás og því minnkuðu vinsældir norska eldislaxins hjá japönskum neytendum í réttu hlutfalli við fituna í honum. Málið er ofurlítið snúið. Þótt fóðurframleiðendur notuðu lýsi og mjöl unnið úr fiski veiddum í Norður-Atlantshafi í stað jurtaafurðanna, sem auðvitað er dýrara, væri það ekki nægilega góð lausn því minna er af omega-3 fitusýrum í lýsi úr þeim fiski en hinum suðurameríska. Nú bíða norskir eldislaxútflytjendur með nokkurri óþreyju eftir því að áhrifa af E1 Nino hætti að gæta, afli glæðist við Suður-Ameríku og verð lækki á lýsi og mjöli svo að norskur eldislax geti á ný étið sig sprengsaddan af meinhollum fitusýrum til að enda svo tilveru sína sem verndari hjartna og æða í kroppi japanskra sælkera. Magur og feitur fiskur jafn hollur En það eru ekki allar fregnir sem benda til meinhollustu Omega-3. í síðasta mánuði birtist í norska blaðinu Fiskaren grein um nýjar rannsóknir sem sýni að magur fiskur sé jafn hollur og feitur og að þeir sem borða eina til tvær fiskmáltíðir á viku fá ekkert frekar hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem borða fisk fimm sinnum í viku. Sömuleiðis er allsendis óvíst að það séu Omega-3 fitusýrurnar sem geri fiskinn að hollmeti. Síðan um miðjan áttunda áratuginn hefur tíðni hjarta- og æðasjúkdóma minnkað um nær helming hjá norskum körlum á aldrinum 40-59 ára. Á sama tíma hefur fiskneysla minnkað. Norsk heilbrigðisyfirvöld segja ljóst að eitthvað hafi verið gert rétt í vali fæðutegunda, en það sé ekki hægt að tengja aukinni fiskneyslu. Á tímabilinu hefur hluti orku úr fitu í fæði minnkað úr 42% í 35%. Sumir telja að einblínt hafi verið um of á að Omega-3 fitusýrurnar séu helstu hollustuefnin í fiski. Síðan 1998 hefur fiskimjöl verið minna í fóðri eldisfisks en jurtaafurðir meiri. Áhugavert væri að rannsaka hvort samsetning fitusýra í fiski hefði breyst vegna þessa. Svo er aftur annað mál að hve miklu leyti fiskurinn breytir fitusýrum í jurtaolíunni í eigin fitusýrur. 16 ÆCiIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.