Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1999, Qupperneq 32

Ægir - 01.04.1999, Qupperneq 32
GunnarB. Sigurgeirsson: Nálgun við neytandann essi grein er að mestu leyti byggð á erindi höfundar á ráðstefnu Stafnbúa sem haldin var í síðasta mánuði. Erindið fjallaði um mikil- vœgi vöruþróunar fyrir íslenskan fisk- iðnað og um þœr féiagslegu breyting- ar sem eru að verða á okkar mark- aðssvœðum og leittgeta til nýrra tœkifœra á þessu sviði. Umrœdd sóknarfœri kunna að vera innan seil- ingar en ýmislegt kann að verða í veg- inum fyrirþví að viðgetum hagnýtt okkur þessi sóknarfœri. Einnig er vik- ið lauslega að stöðu íslensks fiskiðn- aðar í dag og helstu breytingar sem orðið hafa á síðustu árin og þá sér- staklega hvað varðar land- vinnsluna. undanfarin ár er fækkun landvinnslu- eininga. Þær hafa þó stækkað þannig að meira hráefni fer í gegnum hverja einingu en áður. Þessi þróun hefur leitt til þess að framleiðendur eru bet- ur í stakk búnir til að tæknivæðast og ráða til sín menntað starfsfólk á hin- um ýmsu sviðum. Fullvinnsla eða ekki fullvinnsla Það er útbreiddur misskilningur á fs- landi að íslenskur fiskur sé lítt unninn og stórt hlutfall fari til endurvinnslu erlendis. Ef við skilgreinum fullunnar afurðir þannig að þær fari frá framleið- endum á íslandi til lokaneytenda í Fiskvinnsla hafi breyst á síðari árum í þeim efn- um. Að miklu leyti er um að ræða út- flutning á hreinum fiski, helst án nokkurra auka- eða hjálparefna. Hins vegar ber að geta að fjölbreytilegar og skemmtilegar pökkunaraðferðir hafa gætt íslenskar fiskafurðir lífi. Það breytir því ekki að óhætt er að fullyrða að vinnslustig hér sé fremur lágt enda hefur e.t.v skort hvatningu frá mark- aðnum til mikilla breytinga. Útbreiddur misskilningur hérlendis að íslenskur fiskur sé lítt unninn. íslenskur fiskiðnaður íslenskur fiskiðnaður hefur breyst mikið á undanförnum áratug. Ein skýrasta breytingin sem hægt er að benda á er að hlutur sjóvinnsiu hefur aukist mjög á kostnað hefðbundinn- ar landvinnslu. Afurðir sjó- frystingar eru yfirleitt frekar einsleitar. Mest er framleitt af millilögðum flök- um sem oftast fara inn á veitinga- markaðinn í Evrópu eða í Bandaríkj- unum. Hlutfallslega hátt verð hefur fengist fyrir slíkar pakkningar sem eru fljótunnar og einnig er nýting fjár- muna góð. Því hefur reynst erfitt fyrir hefðbundna landvinnslu að keppa við sjófrystinguna. Annað atriði einkennandi fyrir óbreyttu ástandi, er meirihluti ís- lenskra fiskafurða fullunninn. Það er mikilvægt fyrir almenning á íslandi að þegar kröfunni um fullvinnslu er hald- ið á lofti sé það tekið fram hvað átt er við með orðinu fullvinnslu. Ofan- greind skilgreining hlýtur að vera eðli- legust. Á hinn bóginn er hægt að ræða um vinnslustig afurða. Óhætt er að fullyrða að vinnslustig fiskafurða hér á íslandi sé fremur lágt enda þótt margt Breytingar á lífsháttum Á undanförnum árum hafa átt sér stað miklar breytingar á lífs- mynstri fólks í hinum vestrænu löndum. Allir geta verið sammála því að þessar breytingar eru var- anlegar og munu hafa djúpstæð áhrif á samsetningu hinna ýmsu þjóðfélagshópa og skapa nýjar þarfir. Hægt er að nefna örfá atriði sem gætu haft bein áhrif á eftirspurn fólks eftir matvælum í framtíðinni. Það er þekkt að hlutfall eldra fólks er mikið að aukast í okkar markaðs- löndum. Fólk lifir almennt séð lengur og aldursskipting þjóðfélagsins hér sem og annars staðar er að breytast í þessa átt. Kröfur eldra fólks til matar- æðis er annað en hjá öðrum aldurs- hópum. Vaxandi eftirspurn mun verða 32 MGM

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.