Ægir - 01.09.1999, Síða 6
ifr ííA
ÍBEMIIIIP
Akureyrarbær
áhrifalaus í ÚA
Þegar sala á 20% hlut Akureyrar-
bæjar í Utgerðarfélagi Akureyringa
er um garð gengin hefur Akureyrar-
bær engin bein ítök f stjórn fyrirtæk-
isins. Fyrir hlutinn í félaginu greiddi
Búnaðarbanki íslands um 1250
milljónir króna og þar nreð má segja
að þetta fornfræga útgerðarfélag sé
fyrst og fremst komið í eigu stærri
fjárfesta á hlutabréfamarkaðnum.
r
Oslandsverksmiðjan að
komast í gagnið
Fyrsti áfangi nýrrar fiskimjöls-
verksmiðju Óslands hf. á Flöfn í
Hornafirði er nú tilbúinn. Verk-
smiðjan getur afkastað um 1100
tonnum á sólarhing þegar hún verð-
ur fullbúin og hefur getu til að fram-
leiða hágæðamjöl. Búnaður verk-
smiðjunnar er frá Atlas-Stord og sá
Héðinn hf. um uppsetningu búnað-
ar. í verksmiðjunni er loftþurrkari
og mun hann vera sá stærsti sinnar
tegundar á íslandi.
Leiðrétting
í umfjöllun í síðasta tölublaði Ægis
um fjölskylduna í Vísi hf. í Grindavík
birtist mynd af fjölskyldunni þar sem
ein af dætrum Páls H. og Margrétar var
sögð heita Sólveig en hið rétta er að
hún heitir Sólný. Þá skal tekið fram á
myndina vantaði tvær dætur Páls H. í
Vísi og Margrétar, þ.e. Margréti Páls-
dóttur og Kristínu Pálsdóttur.
58. Fiskiþing haldið dagana 31. september
og 1. október:
Helgað alþjóðasamningum
og umhverfismálum
T7iskiþing, hið 58. í röðinni, verður
J3 lialdið á Grand Hótel í Reykjavík
dagana 30. september og 1. október
ncestkomandi. Þetta Fiskiþing er
annað í röðinni eftir að skipulagi
Fiskifélagsins var breytt og verður
þema þingsins Sjávarútvegur:
Alþjóðasamningar og umhverfismál.
Alls verða haldin 6 erindi um þetta
eftii auk þess sem Fiskiþing er
jafhframt aðalfundur Fiskifélags
íslands.
Alls sitja 39 fulltrúar Fiskiþing.
Þingið verður sett fimmtudaginn 30.
september kl. 13.30 og mun Árni Mat-
hiesen, ávarpa þingið í upphafi þess. í
kjölfarið munu fylgja erindi sem
tengjast þemaefni þingsins. Davíð
Egilsson hjá hollustuvernd ríkisins
mun fjalla um aðskotaefni á mis-
munandi hafsvæðum, á vegum utan-
ríkisráðuneytisins verður fyrirlesari
sem fjallar um alþjóðasamvinnu og
alþjóðasamninga, Magnús Jóh-
annesson, ráðuneytisstjóri í umhverf-
isráðuneytinu, mun fjalla um alþjóð-
lega umhverfissamninga sem varða
sjávarútveg, Arnór Halldórsson frá
sjávarútvegsráðuneytinu mun fjalla
um aðkomu sjávarútvegsins að tilurð
alþjóðasamninga. Loks verður fluttur
fyrirlestur um samstarf sjávarútvegs og
yfirvalda vegna alþjóðasamvinnu og
fyrirlestur um umhverfismerkingar,
veiðirétt og sölumöguleika.
Föstudaginn 1. október mun Fiski-
þingi verða slitið þegar þingið hefur
afgreitt tillögur nefnda.
Fulltrúar á Fiskiþingi, liaustið 1998.
6 AGIR