Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 14

Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 14
Ægirá íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi vinduna gerir einnig að verkum að auðvelt er að draga trollið út aftur þegar kastað er. Þá er ótalin endingin en hún eykst verulega þegar trollið fær betri meðferð á vindutromlunni. í það minnsta hef ég dæmi um þetta hjá Þerney RE en skip sem togað hafa við hlið hennar þurfa að skipta örar um flottroll og það er ekki svo lítill þáttur þegar hvert troll kostar 15 milljónir króna," segir Ragnar. Vandamálin eru til þess að leysa þau Eins og áður segir er flottrollsstýringin nýjung á heimsmælikvarða og ekki Víraklemma fyrir grandara er ein af nýjungum frá R. Bóassyni. hægt að benda á hliðstæðan búnað til hjálpar á flottrollsveiðum togara. Ragnar vonast til að stýringin fari urn borð í fleiri íslenska úthafskarfatogara áður en vertiðin hefst á Reykjanes- hrygg í vor en markaðssvæðið er í raun út um allan heim og heimsflot- inn er stór. „Mínar lausnir snúast fyrst og fremst um að leysa vandamálin á sem einfaldastan hátt og það hefur mér gengið ágætlega fram að þessu. Flottrollsstýringin er til að mynda að- eins 3 tonn að þyngd og leysir vanda- málin á einfaldan og öruggan hátt. Þannig lausnir hef ég að leiðarljósi," segir Ragnar Bóasson, fyrrverandi há- seti á togaranum Snorra Sturlusyni RE. Marel hf. verðlaunað fyrirframleiðslu á fiskvinnslubúnaði: íslendingar í forystuhlutverki í heiminum í framleiðslu fískvinnslubúnaðar - segir GeirA. Gunnlaugsson, forstjóri Marel hf. Geir A Gunnlaugsson, forstjóri Marel hf., var að vonum ánægður með þær viðurkenningar sem fyrirtækinu hlotnaðist við veitingu íslensku sjávarútvegsverðlaunanna sem afhent voru í hófi sem haldið var í tengslum við Islensku sjávarútvegssýning- una. Annars vegar er um að ræða viðurkenningu sem besti ís- lenski framleiðandi fiskvinnslubúnaðar og hins vegar sem besti heildarframleiðandi fiskvinnslubúnaðar. Að íslensku sjávarút- vegsverðlaununum stóðu tímaritið World Fishing, Fiskifréttir og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins. Hampiðjan hf., Brunnar ehf., og Eimskip styrktu að auki viðburðinn sérstaklega. Geir A. Gunnlaugsson segist afar ánægður með Islensku sjáv- arútvegssýninguna 1999. „Þetta er afar glæsileg sýning í alla staði og vel heppnuð. Fyrir okkur hjá Marel hf. hefur íslenska sýningin ávallt sérstöðu umfram þær fjölmörgu sýningar sem við tökum þátt í á hverju ári. Hér á íslandi er okkar heimamarkaður og til íslands á þróun okkar búnaðar fyrst og fremst rætur að rekja. Hér á sýningunni hittum við líka meginþorra okkar íslensku við- skiptavina. Mér finnst líka mikilvægt hve vaxandi aðdráttarafl íslenska sjávarútvegssýningin hefur á alþjóðavettvangi og hún er vafalaust orðin sú stærsta í heiminum á sviði tækja og búnaðar til fiskvinnslu. Ég tel að sýningin hér í Kópavogi hafi einmitt sannað sig sem tækjasýning í allra fremstu röð og staðfest enn á ný hversu trúverðugir íslenskir tækjaframleiðend- ur eru og hve ótvírætt forystuhlutverk íslendinga er gagnvart búnaði til fiskvinnslu og sjávarútvegs yfirleitt. Einmitt af þessum ástæðum njótum við Marelmenn okkur vel á þessari sýningu," segir Geir A. Gunnlaugsson. forstjóri Marels hf. Ánœgðir forystumenn Marels hf. með viðurkenningar sem fyrirtœkinu hlotnaðist þegar íslensku sjávariítvegsverðlaunin voru afhent. Frá vinstri: Láms S. Ásgeirsson, framkvœmdastjóri sölu- og markaðssviðs, Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri og Jón Þór Ólafsson, framkvœmdastjóri vöruþróunar Marels hf. 14 ÆOR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.