Ægir - 01.09.1999, Síða 8
Guöbergur Rúnarsson
Ný Hríseyjarferja
sjósett hjá
Stálsmiðjunni hf.
Stálsmiðjan í Reykjavík hefur
hleypt af stokkunum nýrri ferju fyrir
Hríseyinga sem fær nafnið Sævar,
hið sama og fyrri ferja. Hér er um
að ræða glæsilegt skip og
umtalsverða breytingu í ferjurekstri
þeirra Hríseyinga, enda er skipið
mun stærra en fyrri ferja. Nýi Sævar
er tæplega 23 metrar á lengd, 6,7
metrar á breidd og skráður 149
tonn. í ferjunni eru tveir salir með
70 sætum samtals.
Tæknilýsing á Sævari verður í
næsta tölublaði Ægis.
Seldu þrjú vindukerfi
á sýningunni
Fyrirtækið Naust marine í Garða-
bæ var eitt þeirra fjölmörgu sem
seldu vel á sjávarútvegssýningunni.
Fyrirtækið gerði tvo sölusamninga á
sýningunni, annars vegar við
Sfldarvinnsluna hf. í Neskaupstað
um tvö ATW togvindukerfi um borð
í togarana Bjart og Barða og hinn
samningurinn var við Granda hf. og
um uppsetningu á ATW togvindu-
kerfi um borð í togarann Ottó N.
Þorláksson. í heild eru þessir
samningar að andvirði 53 milljónir
króna.
Sameining Gunnvarar og Hradfrystihússins samþykkt:
Nýtt stórfyrirtæki í
sjávarútvegi að veru-
leika á Vestfjörðum
Hluthafafundir í Gunnvöru hf. á
ísafirði og Hraðfrystihúsinu hf. í
Hnífsdal hafa nú samþykkt sam-
hljóða að sameina félögin á grund-
velli samrunaáœthinar sem mótuð
var fyrr í sumar. Hið nýja félag mun
bera nafnið Hraðfrystihúsið-Gunnvör
hf.
Einar Valur Kristjánsson, stjórnar-
formaður Hraðfrystihússins hf. í
Hnífsdal, segir að með sameiningunni
verði til fyrirtæki sem sterka kvóta-
stöðu og fjölbreyttan skipastól. Veiði-
heimildirnar eru fjölbreyttar og aug-
ljóst er að styrkur nýja félagsins mun
Frá fsafirði.
liggja í miklum heimildum í þorski, en
samtals er þær um 6000 tonn.
Með í sameininguna kemur íshúsfé-
lag ísfirðinga hf., enda er fyrirtækið
nærfellt að fullu í eigu Gunnvarar hf.
Einar Valur segir að það sé raunar
pappírsvinna á fáum vikum að ganga
frá innkomu íshúsfélagsins í Hrað-
frystihúsið-Gunnvöru hf.
Veiðiheimildir Hraðfrystihússins-
Gunnvarar hf. að loknu samruna-
ferlunu skiptast þannig:
Þorskur 6000 tonn
Ýsa 785 tonn
Ufsi 570tonn
Karfi 1250 tonn
Steinbítur 520 tonn
Grálúða 785 tonn
Skarkoli 37 tonn
Þykkvalúra 36 tonn
Langlúra 14 tonn
Úthafsrækja 980 tonn
Innfjarðarrækja 92 tonn
Sandkoli 76 tonn
Skrápflúra 1110 tonn
Síld 1280 tonn
Karfi á Reykjaneshrygg 152 tonn
Rækja á Flæmingjagrunni 264 tonn
Barentshaf - þorskur 264 tonn
Þessum kvóta er útdeilt á 8 skip og
báta í eigu nýja félagsins, þ.e. Pál Páls-
son, Bessa, Andey, Örn, Júlíus Geir-
mundsson, Stefni, Framnes og Gunn-
hildi.
8 ffllR