Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 16
Norski
skipstjórastóllinn
ljúfur!
Að sönnu vöktu skipstjóra-
stólarnir hjá fyrirtækinu Marafli
mikla athygli enda leðurklæddir
lúxusstólar. Peir voru margir sem
laumuðst til að setjast í herlegheitin
og höfðu á orði að ekki færi illa um
skipstjórnarmennina í brúnni en
eitt er að sitja í leðrinu inni á gólfi á
sýningu og annað að veltast um úti
á rúmsjó! Stólarnir eru frá norska
fyrirtækinu NorSap og hér á
myndunum eru framleiðendur
stólanna, norsku bræðurnir Harald
Jansen og Jon Helge Jansen, með
Birgi Sveinssyni, framkvæmda-
stjóra Marafls, sem situr í stólnum.
Ægir á ísiensku sjávarútvegssýningunni í
Kópavogi
Micro - ryðfrí smíði:
Möguleikar á
verkefnum í
Færeyjum
1~?yrirtœkið Micro vcirð til fyrir röskum þremur árum, rétt um þœr mundir
JT sem síðasta sjávarútvegssýning var haldin hér á landi. Sýningin að þessu
sinni varþví sú fyrsta sem fyrirtœkið kynnir sína starfsemi á og þeir félagar
hjá Micro, Steinn Árni Ásgeirsson ogSveinn Sigurðsson, sögðu sýninguna góðan
vettvang til að ná til núverandi viðskiptamanna, kynna framleiðsluna fyrir
nýjum viðskiptavinum og mynda ný viðskiptasambönd. Þeir félagar benda
einnig á að fyrir fyrirtœki eins og Micro, sem byggi á þjónustu við sjávarútveg-
inn, sé ekki stœtt á að láta stóra alþjóðlega sjávarútvegssýningu á íslandi
framhjá sér fara.
„Við höfum sérhæft okkur í smíði á færiböndum og ryðfrírri smíði á búnaði
fyrir sjávarútveginn og skapað okkur gott orð. Við lögðum ekki upp með að fá
mikið af beinni sölu í gegnum sýninguna en finnum greinilega fyrir því að hún
skilar okkur meiru en við reiknuðum með. Sýningin er á þann hátt að koma okk-
ur á óvart og til að mynda hafa komið til okkar erlendir áhugasamir aðilar, t.d.
frá Færeyjum, og aldrei að vita hvort áhugi þeirra getur leitt af sér ný verkefni fyr-
ir okkur. En við teljum að við höfum með sýningunni stimplað okkur vel inn í
sjávarútveginn, eins og þeir segja á fótboltamálinu," segja Steinn Árni Ásgeirsson
og Sveinn Sigurðsson.
Sveinn Sigurðsson og Steinn Ámi Ásgeirsson í bás Micro. „Ekki hœgt að láta svona stóra
alþjóðlega sjávarútvegssýningu framhjá sér fara þegar hún er haldinn rétt við
bœjardyrnar."
16 ÆGIR
jóliann Ólafur Halldórsson