Ægir - 01.09.1999, Síða 19
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
á íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi
Skeljungur auglýsir í Sjómannaalmanakinu
f*eir voru margir samningamir sem
Jr Inga Ágústsdóttir, auglýsinga-
stjóri Ægis og Sjómannalmanaks
Fiskifélags íslands, gerði á íslensku
sjávaútvegssýningunni. Nú stendur
vinnsla Sjómannaalmanaksins sem
hœst og er að búast við breyttri og
enn bœttri útgáfu undir lok ársins.
Útgáfan var kynnt sýnendum á ís-
lensku sjávarútvegssýningunni og voru
viðtökur góðar - enda er hið gamal-
gróna Sjómannaalmanak Fiskifélags ís-
lands einn þekktasti auglýsingavett-
vangur í íslenskum sjávarútvegi.
Hér á myndinni er Inga Ágústsdótt-
ir, auglýsingastjóri, að ganga frá aug-
lýsingasamningi við Þorstein V. Péturs-
son, markaðs- og sölustjóra Skeljungs.
Hexa fœrir út kvíarnar:
Fatalína fyrir
sjávarútveginn
Umboðs- og heildverslunin Hexa í Kópavogi kynnti í bás sínum sænska vinnu-
fatalínu sem fyrirtækið hefur tekið við umboði fyrir hér á landi. Ársæll Ó. Stein-
móðsson, sölufulltrúi, segir sænsku vinnufötin í hæsta gæðaflokki og spannar lín-
an fatnað fyrir fiskvinnslu, sem og sjómannastéttina.
„Við höfum mikla reynslu í sölu á vinnufatnaði hér á landi en höfum ekki áður
selt hlífðarfatnað fyrir sjávarútveginn. Við höfum hins vegar fundið fyrir áhuga viðskiptavina á að við tækjum inn í okkar
sölukerfi fatnað fyrir sjávarútveginn og þegar við höfum nú fundið gæðafatnað sem við erum ánægðir með þá er okkur
ekkert að vanbúnaði að hefja sölu. Fatnaður okkar er frá Grundéns í Svíþjóð og er um að ræða föt úr PVC og Polyureth-
an-efnum, sem er bæði léttur og þægilegur,“ segir Ársæll og telur sjávarútvegssýninguna mikilvæga kynningu til markaðs-
setningar í sjávarútveginum.
„Mörg sjávarútvegsfyrirtæki þekkja okkur vel af vönduðum vinnufötum sem við höfum selt undanfarin ár, t.d. Frid-
stads-fötin og fleiri merki. Hins vegar hafa margir komið til okkar hingað í básinn og fagnað innkomu okkar á hlífðarfata-
markaðinn fyrir sjávarútveg og við erum ákaflega ánægðir með viðtökurnar sem við fáum hér,” segir Ársæll en sænsku
fötin verða fáanleg í smásölu og heildsölu hjá fyrirtækinu í Kópavogi, sem og hjá umboðsmönnum Hexa um allt land.
Fatalína frá Grundéns í SvíþjóB í bás Hexa.
Til hægri á tnyndinni er Ársœll Ó.
Steinmóðsson, sölufiilltníi hjá Hexa og til
vinstri er Anders Rentzog, fiilltnii frá
framleiðenda fatnaðarins í Svíþjóð.
Mm 19
/óhann Ólafiir Halldórsson.