Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 21
Ægirá íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
skrifstofu eða í löndunarstöð. Hún
sendir þegar til baka upplýsingar um
hvernig ráðstafa á aflanum og þær
upplýsingar birtast á skjá fyrir framan
lyftarastjóra. Þannig veit hann strax
hvert viðkomandi fiskur á að fara.
„Þetta er einfalt dæmi um notkunar-
möguleika kerfisins en það er auðvitað
undir hverju og einu tilfelli komið
hvernig notkunin er útfærð. Annað
dæmi sem ég get nefnt er þegar fiskur
fer í kerum frá mörkuðum til kaup-
enda. Þá má lesa merki af rafflögunni
inn í tölvu og skrá allar upplýsingar
um afgreiðslutíma, kaupanda og annað
sem nauðsynlegt er. Ef ker skilar sér
ekki til baka þá má alltaf fletta upp í
tölvunni til að sjá á hvern það var síð-
ast skráð út og halda þannig utan um
keraeignina.
Jafnvel er á auðveldan hátt hægt að
tengja inn í kerfið reikningaútskrift
vegna keraleigu, ef um slíkt er að ræða.
Ég held að með kerfinu séum við að
opna alls kyns möguleika til hagræð-
ingar sem ekki hafa verið áður opnir
nema með ærinni handvirkri skráning-
arvinnu. Okkar hugsun er að tengja
okkar framleiðsluvörur við þá tölvu-
tækni sem þegar er til í dag og fyrir
viðskiptavinina erum við að auðvelda
dagleg störf til muna," segir Elías.
Samstarfsverkefni
með tæknifyrirtækjum
Eins og áður segir var það fyrirtækið
Astra ehf. á Seltjarnarnesi sem hafði
samstarf við Borgarplast hf. um þróun
á kennikerinu. Astra kemur til með að
bjóða þann búnað sem þarf sérstaklega
að kaupa vegna kennikeravæðingar-
innar en kerfið er þróað með það fyrir
augum að upplýsingar verði skráðar
inn í Wisefish upplýsingakerfið fyrir
sjávarútveg, sem mörg sjávarútvegsfyr-
irtæki hafa þegar tekið í notkun. Ef
notandi þarf á sendibúnaði að halda
milli lyftara og skrifstofu, líkt og
nefndur var í dæminu hér að framan,
er sá búnaður fáanlegur hjá fyrirtæk-
inu Boðvaka ehf.
Dreifðu Ægi í þúsundavís!
Þessar hressu dömur dreifðu Ægi í þúsundavís meðal sýningargesta og
sýnenda á meðan á íslensku sjávarútvegssýningunni stóð. Þetta aukablað Ægis,
sem kom út rétt fyrir sýninguna, inniheldur kynningu á á annað hundrað fyrir-
tækjum sem á sýningunni voru og höfðu menn á orði að þarna væri á ferðinni
fyrsta jólabókin í ár! Alls var aukablaðið prentað í 10 þúsund eintökum og er
mjög góð heimild um fyrirtæki sem tóku þátt í sýningunni og hvað þau höfðu
að bjóða.
Stúlkurnar fjórar á myndinni eru Ragnheiður Gyða Ragnarsdóttir, Tinna
Sverrisdóttir, Laufey Bjarnadóttir og Alenka Zak.
Verðlaunabás Radíómiðunar
Bás Radíómiðunar var valiim fallegasti básimi á sýningunni og þar var mikil
áhersla á tölvutœknina. Hér eru fróðleiksfusir gestir að kynna sér hugbúnað sein
Radíómiðun kynnti.
ÆGIR 21