Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1999, Qupperneq 24

Ægir - 01.09.1999, Qupperneq 24
Fiskvinnslufólkið á gólfinu Skagakoncm Elínbjörg JVlagnúsdóttir hefur verið áberandi fulltrúi fiskvinnslufólks á undanförnum árum og talað tcepitungulaust á fundum og ráðstefnum um þá hlið fiskvinnslunnar sem snýr að hinu almenna fiskverkafólki á gólfinu. þá hlið mála þekkir Elínbjörg enda mcetavel sjálf því hún hefur starfað í fiskvinnslu á Akranesi frá árinu 1982 þar til á síðasta ári en þá fcerði hún sig um set og tók við starfi hjá Verkalýðsfélaginu á Akranesi. 9 því starfi munu málefni fiskverkafólks verða henni áfram hugleikin og ekki aðeins sem starfsmanni verkalýðsfélagsins heldur ekki síður vegna þess að Elínbjörg er varaformaður fiskvinnsludeildar Verkamannasambands Úslands. Sú deild er fárra ára gömul en hefur, þrátt fgrir ungan aldur, látið fast að sér kveða og gert málefni fiskvinnslufólks mun sýnilegri í umrceðunni en áður var. Kastljósið segir baráttukonan Elínbjörg JVlagnúsdóttir að fiskverkafólk þurfi líka á að halda og enginn vafi leiki á að meiri athygli á málefnum fiskvinnslufólks hafi orðið því til góðs á allra síðustu árum. Elínbjörg er fjarri því svartsýn á málefni fiskvinnslufólks á komandi árum, segir að störfin breytist hratt með tceknivceðingunni en eftir sem áður verði það grundvallaratriði að eiga fyrsta flokks fagfólk í fiskvinnslu. Jyrsta flokks fagfólk eigi að fá að njóta sinna hcefileika til fulls í vinnslusölunum og njóta hcefileikanna í gegnum launaumslagið. „Þegar ég byrjaði í fiski þótti eftir- sóknarvert að komast að í frystihúsinu ef borið var saman við mörg önnur verkamannastörf. Fiskvinnslan var kannski í sjálfu sér ekki eftirsóknar- verð en bónusinn gerði að verkum að tekjumöguleikarnir voru aðeins meiri en gerðist í öðrum störfum. Miðað við sama vinnutíma var meira upp úr fisk- vinnunni að hafa en þetta hefur síðan breyst með árunum," segir Elínbjörg og víkur hér talinu strax í upphafi að ásteitingarsteini í umræðu um störf fiskvinnslufólks, þ.e. einstaklings- bónuskerfinu. Hún segist fjarri því að vera andstæðingur þess að einstak- lingsbónusinn sé notaður sem grunn- ur í launakerfinu í fiskvinnslunni, hvað sem aðrir kunni að segja um það mál. Duglegt fólk í vinnslunni eigi að fá að njóta þess í gegnum launa- umslagið ef það standi sig vel. Kröfurnar breyttu öllu „Ég reikna ekki með að þegar ég var að byrja í fiskvinnslu hafi það þótt merki- legt markmið hjá ungu fóiki að snúa sér að frystihúsinu og byrja að vinna í fiski. Það voru heldur ekki gerðar neinar kröfur í frystihúsunum og hringinn í kringum landið mátti telja húsin til nokkurs konar verndaðra vinnustaða sveitarfélaganna þar sem allflestir sem ekki áttu möguleika á al- mennum vinnumarkaði fengu vinnu og beinlínis var ætlast til að frystihús- in tækju þetta fólk í vinnu. Ég tek það skýrt fram að hér er ég ekki að tala niður til þessa fólks en þegar einstak- lingsbónusinn kom til sögunnar þá breyttist viðhorfið snarlega. Allt í einu var byrjað að gera kröfur, og þær voru af hinu góða að mínu mati. Síðar komu enn harðari kröfur til sögunnar þegar kaupendur á framleiðslu frysti- húsanna tóku að setja fram kröfur um gæði framleiðslunnar, hráefnismeð- ferð og alla vinnslu. Ég get ekki líkt saman þeim vinnustöðum sem frysti- húsin voru þegar ég byrjaði í fiski, samanborið við þau hús sem skara fram úr í dag. Áður fyrr gátu gestir og gangandi staðið reykjandi í gættinni í endanum á salnum en í dag er ekki einu sinni leyft að reykja nálægt hús- unum, hvað þá meira." „Einstaklingsbónusinn ekki vinnuþrælkunarkerfi“ -Finnst þér að einstaklingsbónusinn hafi verið jákvæður fyrir fiskvinnsl- una? „Já, það finnst mér. Það er hauga- lygi sem sumir vilja halda fram að ein- staklingsbónusinn hafi verið vinnu- þrælkunarkerfi í fiskvinnslu. Ég fæ ekki séð enn þann dag í dag hvað það var sem menn sáu svona slæmt við einstaklingsbónusinn og ekki man ég eftir því að við konurnar í salnum fær- um að metast á um það hvort einhver væri hærri en önnur. Við höfðum ekki við aðra að rífast um það atriði en okkur sjálfar. Hins vegar gat hópbón- 24 MGIU

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.