Ægir - 01.09.1999, Page 26
Fiskvinnslufólkið á gólfinu
Hús Hciraldar Böövarssonar hf. Akranesi. Elínbjörg vann um áraraðir hjá fyrirtœkinu og
segir hún HB gott dœrni wn mjög framsœkið landvinnslufyrirtœki sein sýnt liafi og
sannaö að hcegt sé að ná arði út úr vinnslu á fiski í landi.
usinn valdið því að pirringur kom upp
vegna þess að einhver skilaði ekki
nægilega sinni vinnu og hafði þannig
áhrif á laun alls hópsins. Mér finnst
þess vegna hópbónusinn vera nokkurs
konar félagsmálapakki inni í fyrirtækj-
unum og fagna því að tími hópbónus-
kerfisins sé runninn á enda. Enda sýn-
ir það sig að í dag eru öll almennileg
fiskvinnslufyrirtæki að taka upp ein-
hvers konar einstaklingstengdan hvata
þannig að fólk sjái það í launaumslag-
inu þegar það er að gera vel. Einstak-
lingsbónusinn er einfaldlega rétt-
látasta launakerfið í fiskvinnslunni
enda á fólk ekki að geta komið inn í
vinnsluna til að vera farþegi í hóp-
bónuskerfi og hafa minna fyrir vinn-
unni en aðrir," segir Elínbjörg ákveðið.
„Ég held að neikvæðnin út í bónus-
inn hafi komið til vegna þessarar
hugsunar sem of ríkjandi er í þjóðfé-
laginu að enginn má skara fram úr
öðrum. Meðalmennskan er alltof ríkj-
andi hjá okkur og við græðum ekkert
á henni og allra síst í fiskvinnslunni.
Það á ekki að vera neikvætt í fisk-
vinnslu að einhverjir skari fram úr en
það þýðir hins vegar alls ekki að aðrir
séu kolómögulegir."
„Útrýmum oröinu ófaglærður“
Kynslóðaskipti hafa orðið í frystihús-
unum frá „gullöld" einstaklingsbónus-
kerfisins og ekki aðeins að ný kynslóð
fiskvinnslufólks hafi tekið við heldur
hafa einnig runnið í gegnum húsin
tvær, ef ekki þrjár, kynslóðir • af
vinnslulínum. Þegar horft er yfir fisk-
vinnslusal í hágæða frystihúsi kemur
fyrst upp í hugann að þörfin fyrir góða
fagþekkingu sé ekki sú sama og áður,
nú þurfi aðeins að fá vinnuafl til að
stjórna vélunum en þær hafi tekið við
miklu af störfum fiskivinnslufólksins.
Elínbjörg segir frystihús ekki komast í
fremstu röð í dag nema með góðu fag-
fólki en nú skipti líka miklu að manna
húsin rétt miðað við vélar og tæki.
„Það er ekki nóg að hafa vélar sem
afkasta ákveðnu magni í flökun og
26 AGIR -----------------------------
hausun ef framhaldsvinnslan er ekki
rétt mönnuð. Öll stigin í vinnslunni
þurfa að vera rétt mönnuð og svo aft-
ur sé vikið að bónuskerfinu þá kemur
röng mönnun einfaldlega niður á
bónus.
„Fagna því að tími
hópbónuskerfisins
sé runninn á enda"
Tæknivæðingin hefur breytt fisk-
vinnslustörfunum og staðreyndin er
sú að þess eru dæmi að fiskvinnslur
hafi bætt í yfirborganir til að halda
fólki sem þjálfað hefur verið upp á sér-
hæfð fiskvinnslutæki og nær góðum
árangri með þau. Þetta finnst mér
mjög jákvætt og sýnir að það er þekk-
ingin og menntunin sem vegur þungt
þegar á hólminn kemur. Ég skorast
ekki undan því að hjá verkalýðshreyf-
ingunni hefur umræðan um launa-
málin verið mikil og truflað framgang-
inn í því að auka menntun fagfólks í
fiskiðnaði. Mitt mat er að menntunin
fyrir fólkið eigi að koma fyrst og þá
koma launin á eftir. Það er enginn að
tala um að allir þurfi að fara í lang-
skólanám heldur er ég að tala um að
við þurfum að mennta fólkið miðað
við tæknina og kröfur markaðarins
sem kaupir afurðirnar af húsunum. Sé
samhljómur í því sem markaðurinn
vill og húsin eru að gera þá eru for-
sendur fyrir hærri launum fyrir
hendi."
- Viltu sjá ákvæði inni í næstu
kjarasamningum sem snúa að mennt-
unarmálum fólks í fiskvinnslu?
„Ég get alveg lofað þér því að ég
mun berjast fyrir því að ekki verði
staðið upp frá borðum án þess að
stofnaður verði starfsmenntasjóður