Ægir - 01.09.1999, Qupperneq 32
Fiskvinnslufólkið á gólfinu
Fiskiðn - fagfélag fiskvinnslufólks fagnar 20 ám afmœli í ár:
Fiskvinnslan
þarf menntað fólk
- segir Kristófer Asmundsson, formaður Fiskiðnar - fagfélags fiskvinnslufólks
Kristófer Ásmundsson, formaður Fiskiðnar. „Um þá miðhm þekkingar og reynslu sem
Fiskiðn vill stuðla að tel ég mikilvœgt í dag að við fáum hið unga og vel menntaða fólk í
greininni til þess að deila sinni þekkingu um stjómun og rekstur til eldri félagsmanna."
Ljóst er að altnennu verkafólki í
fiskvintislu ttiuit fœkka ntikið á
nœstu árutn. Spáð hefur verið að því
muni muni fœkka úr 6.000 í 3.000 á
nœstu tíu árutn eða svo - og þetta tel
ég ekki neina f/arstœðu. Fiskivinnsl-
att í landinu verðttr sífellt tœkni-
vœddari og til starfa þarffólk sein
Itefurgóða menntun og þekkingu og
getur iinnið sérhœfðari og meira
krefjandi störf," segir Kristófer Ás-
mundsson, formaður Fiskiðnar - fag-
félags fiskvinnslufólks.
Höldum utan um
og miðlum þekkingu
Fiskiðn fagnar 20 ára afmæli sínu á
þessu ári. Félagsmenn eru um 600 tals-
ins og hefur fjölgað mikið síðustu ár.
Er það í samræmi við þróunina sem á
sér stað í fiskiðnaði að undanförnu,
þar sem sérmenntuðu starfsfólki fjölg-
ar stöðugt. Félagsmenn eru þeir sem
hafa menntað sig í fiskiðnaði eða eru
stjórnendur í fiskvinnslufyrirtækjum.
Flestir félagsmanna hafa numið í Fisk-
vinnsluskólanum í Hafnarfirði, sjávar-
útvegsdeild VMA á Dalvík, í sjávarút-
vegsdeild Háskólans á Akureyri eða í
Sjávarútvegsháskólanum i Tromsö í
Noregi.
„Félagið kemur ekkert að kjara- eða
hagsmunabaráttu félagsmanna, heldur
einbeitum við okkur að því að halda
utan um og miðla þekkingu í grein-
inni," segir Kristófer. „Við gefum út
tímaritið Fiskvinnsluna sem kemur út
tvisvar á ári og þar er meðal annars
32 MjiIR --------------------------
fjallað um gæða-, framleiðslu- og
tæknimál, stjórnun og útrás íslenskra
fiskvinnlufyrirtækja á erlenda mark-
aði. Þá höldum við fræðslufundi og
heimsækjum fyrirtæki. í tengslum við
aðalfund okkar á þessum ári kynnt-
umst við starfsemi Sambands ísl. fisk-
framleiðenda og Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og útrás þessara fyrir-
tækja á erlenda markaði. Þá var á ný-
lega haldinn fræðslufundur hjá félag-
inu um íblöndunarefni í fisk, þar sem
við fengum tii að fræða okkur þá sem
best þekkja til í þeim efnum. Það er
ýmislegt af þessum toga sem við emm
að fást við."
Hin ósýnilegu landamæri
Kristófer lauk námi frá Fiskvinnslu-
skólanum í Hafnarfirði fyrir tveimur
árum og segir hann námið hafa gagn-
ast sér afar vel, en hann á og rekur
með fjölskyldu sinni Fiskbúðina við
Nethyl í Reykjavík. Almennt sé nám á
sviði fiskvinnslu og sjávarútvegs hag-
nýtt og þeir sem numið hafi fræðin -