Ægir - 01.09.1999, Síða 33
Fiskvinnslufólkið á gólfinu
„Hinir eldri hafa mikla reynslu og fagþekkingu sem okkur hinum er einnig mikilvœgt að
fá að njóta," segir Kristófer Ásmundsson, formaður Fiskiðnar.
og eru flestir félagsmenn í Fiskiðn -
séu eftirsóttir til starfa á ýmsum svið-
um, ekki einasta við fiskframleiðslu
heldur líka til dæmis hjá fyrirtækjum
sem framleiða tölvu- og tæknibúnað
fyrir sjávarútveginn sem og fyrirtækj-
um á fjármálamarkaði, þar sem sér-
þekkingar starfsfólks á sjávarútvegin-
um er oft mikillar þörf.
„Um þá miðlun þekkingar og
reynslu sem Fiskiðn vill stuðla að tel
ég mikilvægt í dag að við fáum hið
unga og vel menntaða fólk í greininni
til þess að deila sinni þekkingu um
stjórnun og rekstur til eldri félags-
manna.
Mikilvægt er að hin ósýnilegu
landamæri í þeim efnum séu brotin
niður. Hinir eldri hafa hinsvegar mikla
reynslu og fagþekkingu sem okkur
hinum er einnig mikilvægt að fá að
njóta," segir Kristófer.
Starfsemin mun eflast
„Ég sé fyrir mér að starfsemi Fiskiðnar
muni eflast - í samræmi við það að sí-
fellt fleiri afla sér menntunar á þessu
sviði. Fyrir endann á þeirri þróun sér
heldur ekki," segir Kristófer, sem er
sem áður segir, formaður stjórnar Fisk-
iðnar. Með honum em í stjórn þau
Skarphéðinn Jósepsson sjávarútvegs-
fræðingur sem starfar við erlend verk-
efni hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, Anna Þormar, kennari við Fisk-
vinnsluskólann í Hafnarfirði, og ísleif-
ur Arnarson, verkstjóri hjá Granda hf.
í Reykjavík.
Frekari upplýsingar um starfsemi
Fiskiðnar má finna á slóðinni:
www.mmedia.is/fiskidn
Hvernig er landvinnsla
í samanburði
við sjóvinnslu?
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra hefur skipað nefnd sem
hefur það verkefni að gera saman-
burð á starfsumhverfi sjóvinnslu og
landvinnslu. Dr. Gunnar I. Birgis-
son, alþingismaður, er formaður
nefndarinnar en einnig sitja í henni
Elínbjörg Magnúsdóttir, varafor-
maður fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambands íslands og Guðrún
Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stál-
skipa í Hafnarfirði.
Launahækkun
um 13% á einu ári
Til að gefa mynd af launaþróun í
betri fiskvinnslufyrirtækjum á
undanförnum mánuðum tók Krist-
ján Bragason, starfsmaður hjá
Verkamannasambandi íslands,
saman tölur um meðalhækkun í
millistóru frystihúsi hér á landi og
mun í dæminu vera um að ræða hús
í betri kantinum. Útreikningurinn
sýnir meðallaun hafa hækkað um
13% á 12 mánaða tímabili en dæmi
er um aðeinstaklingar hafi hækkað
um og yfir 50% á tímabilinu.
ÁCm 33