Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 38
því hlutverki að hjálpa sjálfir til við
fjármögnun þannig að við gætum selt
vélar. En svo breyttist þetta smátt og
smátt og fjárráð kaupendanna jukust."
Eftir nokkurra ára rekstur Baader
þjónustunnar hf. féll Gísli frá og Ás-
geir hætti í fyrirtækinu þannig að
lengstum hefur Ulrich og fjölskylda
hans átt og rekið Baader þjónustuna
hf., eða allt þar til Baader verksmiðj-
urnar í Liibeck í Þýskalandi keyptu
helmingshlut í fyrirtækinu og nafni
þess var breytt í Baader ísland hf.
Vélarnar
skiluðu eigendunum gróða
Ulrich segir að Baader vélarnar hafi
strax á fyrstu árunum hjálpað íslensk-
um fiskvinnslum að græða peninga.
Vélakaupin hafi þannig skilað sér
fljótt í vasa kaupendanna og þeir feng-
ið nasaþefinn af því hverju vélvæðing-
in geti skilað í beinhörðum pening-
um.
„Vélarnar skiluðu öryggi inn í fisk-
vinnsluna. Afköstin jukust en vissu-
lega fylgdu því nokkur átök að sann-
færa menn um að vélarnar væru að
skila miklum afköstum en um leið
góðri nýtingu. En það var einmitt nýt-
ingin sem allt snerist um, og snýst um
enn þann dag í dag. Hvað hana varðar
höfum við alltaf staðið vel hjá Baader
og nýtingin er það atriði sem skilar
notendum vélanna beinum fjárhags-
legum ávinningi."
Baader
státar af góðri vöruþróun
Eins og þeir þekkja sem kaupa Baader
vélar þá bera þær gjarnan einkennis-
stafina IS. Ástæðan er sú að þar fara í
grunninn vélar frá þýsku Baader-verk-
smiðjunum en lokaútfærslan er hjá
Baader ísland hf., þ.e. aðlögunin að ís-
lenskum aðstæðum.
„Þetta er eitt af einkennum Baader
framleiðslunnar. Við vitum að við höf-
um frábærar vélar í höndunum en við
reynum alltaf að gera þær betri og að-
laga þær íslenskum aðstæðum. Baader
Bás Baader ísland ehf. á íslensku sjávarútvegssýningunni
var stór og fjölsóttnr. Hér er lir. Ólafnr Ragnar Grímsson,
forseti íslands, í heimsókn í básnum og kynnist nýjasta
hausaranum, Baader 434.
ísland hefur þannig mikil áhrif á þró-
unina hjá Baader verksmiðjunum og
það sem við gerum hér á landi í breyt-
ingum á útfærslum vélanna er oft tek-
ið upp í framleiðslunni hjá verksmiðj-
unum í Lúbeck. Ein ástæða þessa er sú
að starfsmenn okkar hjá Baader ísland
hf. eru daglega í sambandi við notend-
ur vélanna og eru stöðugt að með-
höndla fisk þannig að þeir vita ná-
kvæmlega um þarfir fiskverkendanna
og óskir um lausnir á vandamálum.
Þetta er lykillinn að góðri vöruþróun
Vegleg afmcelishátíð var haldin í húsnœði
Baader ísland ehf. í Kópavogi í byrjun
september og kom þangað fjöldi viðskipta-
manna fyrirtcekisins.
og af henni státar Baader svo sannar-
lega. Og síðan megum við ekki gleyma
því að íslendingar eru að vinna mun
meiri fisk í dag en þeir gerðu fyrir 40
árum og það væri hreinlega ekki fram-
kvæmanlegt ef ekki
hefðu komið til sögunnar
góðar vélar til fisk-
vinnslu," segir Ulrich.
Framtíöin
í neytenda-
pakkningum
Ulrich telur að framtíðin
í fiskvinnslunni liggi í
framleiðslu í neytenda-
pakkningar. Hann segist
hafa tekið eftir þróun í þá
átt á nýafstaðinni sjávar-
útvegssýningu.
„íslendingar eru mjög
fljótir að finna út hvað er gott og hvað
ekki. Fiskvinnslan og fiskveiðarnar hér
á landi eru fyrsta flokks og hvergi ann-
ars staðar hægt að finna neitt sam-
bærilegt. Fyrsta boðorðið í fiskvinnsl-
unni hefur verið og verður alltaf að ná
mestri mögulegri nýtingu úr fiskinum
og þar má segja að liggi sérsvið okkar
hjá Baader. Við framleiðum vélar til
hausunar, slægingar, roðflettingar og
flökunar og við erum þannig á fyrsta
stigi vinnslunnar og því stigi sem get-
ur ráðið mestu um nýtinguna. Síðan
kemur áframhaldandi tækni í vinnslu,
t.d. tækin frá Marel, sem mér finnst
vera fyrirtæki sem er að framleiða afar
vandaðar vélar," segir Ulrich og undir-
strikar að áhrifin af Baader vélunum
séu vel merkjanleg í íslenskri fisk-
vinnslu í dag.
„Fiskvinnsla án Baader véla er
óhugsandi. Baader er ennþá lang
stærsti aðilinn í framleiðslu fisk-
vinnsluvéla í heiminum og að ætla að
fara í samkeppni við Baader er eins og
ef lítill bílaframleiðandi ætlaði að fara
að berjast við Mercedes Benz. Slíkt
þætti bjartsýni!" segir Ulrich Marth,
aðaleigandi Baader ísland hf.
Lokaorð hans um framtíð íslend-
inga eru mjög einföld: „íslendingar
munu halda forskoti sínu í fiskiðnaði
vegna þess að fólkið í landinu hefur
mikla þekkingu og færni og kann að
beita þessum þáttum."
38 MSR