Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1999, Blaðsíða 40

Ægir - 01.12.1999, Blaðsíða 40
 • * „Á íslandi er starfandi þróunarsjóður sjávarútvegsins sem hefur í raun sama hlutverk og styrkjakerfi ESB, þ.e. að draga úr afkastagetu í greininni - stuðla að vöruþróun, markaðssetningu og nýsköpun í sjávaraútvegi. Það eru því miklar líkur á að framlög þróunarsjóðsins •yrðu skoðuð sem mótframlag Islands á móti framlagi ESB til sjávarútvegs," segir greinarhöfundur. mun íslenskur sjávarútvegur verða styrkhæfur samkvæmt almennum reglum sem í gildi eru um þróunar- sjóði sambandsins. Nánari skilgreining á rétti íslensks sjávarútvegs til fjár- stuðnings færi fyrst og fremst eftir því hvernig ísland yrði skilgreint sem efnahagslegt þróunarsvæði. Það yrði gert í aðildarsamningnum og er því samningsatriði. Það má gera því skóna að ef íslendingar myndu leggja fram þróunaráætlun um niðurskurð flotans gætu þeir átt von á styrkjum í tengsl- um við það verkefni. Þar að auki mætti vænta stuðnings við uppbygg- ingu á atvinnustarfsemi í þeim byggð- arlögum þar sem röskun hefur orðið á atvinnulífi í kjölfar samdráttar í sjávar- útvegi. Þá má ætla að styrkir fengjust til uppbyggingar og endurbóta á hafn- araðstöðu, til verndunaraðgerða, fisk- eldis og til sértækra aðgerða eins og könnunarleiðangra, tilraunaverkefna og tilraunaveiða. Að auki ættu íslend- ingar að eiga kost á styrkjum til vöru- þróunar og markaðsmála í sjávarút- vegi. Styrkveitingarnar væru svo háðar mótframlagi stjórnvalda og greinar- innar sjálfrar en almenna reglan er sú 40 MjiIIR ------------------------ að þau nemi um helmingi af heildar- upphæð. Á íslandi er starfandi þróunarsjóður sjávarútvegsins sem hefur í raun sama hlutverk og styrkjakerfi ESB, þ.e. að draga úr afkastagetu í greininni - stuðla að vöruþróun, markaðssetningu og nýsköpun í sjávaraútvegi. Það eru því miklar líkur á að framlög þróunar- sjóðsins yrðu skoðuð sem mótframlag íslands á móti framlagi ESB til sjávar- útvegs. Nú er hins vegar ljóst að varla verður framhald á starfsemi þróunar- sjóðsins en ég tek hann sem dæmi um hvernig þetta gæti virkað. Framkvæmd fiskveiðistjórnunar -tillit tekið til brýnna hagsmuna- Þróun sjávarútvegsstefnu ESB sýnir ljóslega að engar reglur eru meitlaðar í stein. Stefnan hefur tekið breytingum og undanþágur hafa verið gerðar til að ná fram sáttum og til að koma til móts við ólíka hagsmuni aðildarríkja. Reglan um jafnan aðgang allra að- ildarríkja að fiskimiðum hvors annars er ein af mörgum birtingarmyndum pólitísks eðlis ESB. Ákvæðið var sam- þykkt árið 1970 áður en aðildarvið- ræður hófust við Bretland, írland, Danmörk og Noreg. Markmið þáver- andi aðildarríkja var að tryggja sér að- gang að fiskimiðum umsækjendanna. Ríkin sem sóttust eftir aðild höfðu öll töluverðra hagmuna að gæta á sviði sjávarútvegs og töldu sig ekki geta fall- ist á ákvæðið um jafnan aðgang að óbreyttu máli. Aðildarríkin voru því vart búin að setja stafina sína undir það plagg þegar ákveðið var, að kröfu þeirra ríkja sem sóttust eftir aðild, að gera undanþágu fyrir svæði sem sér- staklega eru háð sjávarútvegi. Frá ár- inu 1983 hefur meginreglan um jafn- an aðgang sætt verulegum takmörk- unum. Birtast þær m.a. í því að að- gangur að veiðisvæðum er bundinn kvóta sem aftur byggir á veiðihefð. Þetta gerir það að verkum að íslend- ingar fengju svo til allan þann kvóta sem heimilt yrði að taka úr sjó við strendur íslands. Ákvörðun um heild- arafla á íslandsmiðum yrði tekin í ráð- herraráðinu þar sem stuðst yrði við ráðleggingar færustu vísindamanna. Engin ástæða er til að ætla að önnur sjónarmið en íslendinga yrðu ráðandi við þá ákvarðanatöku þar sem engin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.