Ægir - 01.12.1999, Blaðsíða 60
Almennt
Friðrik Bergmann SH er 19,40 metra
langt, alhliða fiskiskip. Það er með eitt
heilt þilfar frá skut til stefnis. Skipið er
flokkað og byggt samkvæmt reglum
Det Norske Veritas og Siglingastofnun-
ar íslands.
Skrokkur skipsins er úr stáli. Skipið
er með perustefni og framhallandi og
úthallandi stefni. Skipið er hannað
með kjölhalla og er bandabil 500 mm.
Að öðru leyti er skrokkur skipsins
hannaður á hefðbundinn hátt.
Skipið er með þverstæðum skut.
Það er málað með Hempels skipa-
málningu frá Slippfélaginu málningar-
verksmiðju. Málun skipsins var í
höndum starfsmanna Daníelsslipps.
Aðalvél
Aðalvél skipsins er 471 hestafla vél frá
Heklu hf., af gerðinni Caterpillar. Við
hana er niðurfærslugír með innbyggð-
um aflúttökum.
Skrúfubúnaður samanstendur af
fjögurra blaða skiptiskrúfu og kemur
frá Mekanord, sem og niðurfærslugír-
inn, en það er Vélasalan sem er um-
boðaðili þessa búnaðar hérlendis.
Tvær 38 kW Perkins ljósavélar eru í
skipinu og eru þær á gúmmípúðum
með Newage Stamford rafölum. Þessi
búnaður kemur frá Marafli ehf. Raf-
lagnir í skipinu voru í umsjón Rafboða
í Garðabæ, um innréttingasmíð og tré-
smíðavinnu sá Trésmiðjan Brim í
Hafnarfirði og Sínus hf. annaðist
hönnun stjórntækjapúlts í brú.
Vindubúnaður
í skipinu eru tvær togvindur af gerð-
inni Ósey 1100x1500x275 / 3 ltr. Tog-
kraftur er 7 tonn við 210 bör. Fjarstýr-
ingar fyrir togspil eru í brú. Dælur eru
af gerðinni Denison T6cc og T6c,
tengdar niðurfærslugír.
Ennfremur er akkerisspil staðsett á
bakkadekki og voðarvinda á toggálga.
Óskum útgerð og áhöfn Friðriks Bergmanns SH 240
til hamingju með nýja skipið. Við sáum um
hönnun, gerð teikninga og eftirlit með verkinu.
SKIPA- OG VÉLATÆKNI ehf
RÁÐGJÖF, HÖNNUN OG EFTIRLIT
Hafnargötu 60, pósthólf 38 Keflavík
Sími: 421 5706, Fax: 421 4708
60 ÆGIR