Ægir - 01.12.1999, Blaðsíða 61
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Helstu mál og stærðir
Mesta lengd............................................................19,40 metrar
Lengd p.p..............................................................16,40 metrar
Breidd................................................................. 5,00 metrar
Dýpt................................................................... 2,60 metrar
Karafjöldi í lest.....................................................32x660 lítra
Brennsluolía....................................................11000 lítrar
Ferskvatn...............................................................5000 lítrar
Flokkun.........................Det Norske Veritas/Siglingastofnun (slands
Fjöldi í áhöfn.............................................................5 manns
Aðalvél..................................................................500 hestöfl
Ljósavélar...............................................2 stk. 38 kW hver
Skrúfubúnaður....Niðurfærslugír og 4 blaða skiptiskrúfa 1380 mm, í þvermál
íbúðir
fbúðarými er skipt upp í 3 hluta; brú,
rými á aðalþilfari og íbúðarými neðan
aðalþilfars. Á aðalþilfari eru brú og
inngangur í framskip.
Neðan aðalþilfars er einn 4 manna
svefnklefi og einn 1 manns svefnklefi,
eldhús og borðsalur og salerni.
Lofthæð í íbúðum er 2,2 metrar.
Stýrisbúnaður
Stýrisblað er ca. 1,4 m2. Stýrisblað er
tvöfalt plötustýri og með leiðiplötum
á móts við skrúfu að ofan og neðan og
V-kanti á afturbrún til að auka stýris-
hæfni skipsins. Stýrið er frá skipa-
smíðastöðinni Ósey en stýrisvélin frá
Stýrisvélaþjónustu Garðars Sigurðs-
sonar.
Lest, einangrun og klæðning
Lest skipsins er einangruð með
urethan kvoðu. Loft og veggir eru
klædd með ryðfríum stálplötum. Á
gólfi hennar eru rifflaðar álpiötur sem
skrúfaðar eru á stálramma með ryðfrí-
um skrúfum.
Lest er hönnuð til að bera samtals
32 660 lítra fiskikör, 4 stk. á breiddina,
4 stk. á lengdina og 2 stk. á hæðina,
Tankar
Að framan í perustefni er trimmtankur
fyrir sjó. Fyrir aftan hann og fyrir neð-
an íbúðarými er vatnstankur sem nær
á milli banda no. 28 og no. 32. Vatns-
tanki er skipt með langþili eftir miðju
skipsins.
Aftan við vatnstank er þurrrými á
milli banda no. 26 og no. 28. Þar fyrir
aftan er WC-tankur. Fyrir aftan hann
er síðan eldsneytisolíutankur, og nær
hann á milli banda. WC-tanki og elds-
neytisolíutanki er sömuleiðis skipt
með langþili eftir miðju skipsins.
í vélarúmi eru 2 eldsneytisolíutank-
ar sem ná upp undir þilfar skipsins.
í vélarúmi em einnig tankar fyrir
háþrýstiolíu, smurolíu og spilliolíu.
í skut skipsins eru síðan tveir
trimmtankar sem ná frá skut og að
bandi no. 1. Þessum tönkum er skipt
með langþili eftir miðju skipsins.
Allir tankar eru með mannopum,
áfyllingu, öndunarrömm og nauðsyn-
legum tengibúnaði til aftæmingar.
Vatnsþétt þil
Eftirtalin vatnsþétt þil eru staðsett
neðan aðalþilfars:
Árekstraþil á bandi no. 32, sem
jafnframt er fremra þil íbúðarrýmis.
Þetta þil nær upp að þilfari/bakka-
dekki.
Fremra lestarþil á bandi no. 21 og
aftara lestarþil/fremra vélarúmsþil á
bandi no. 10. Aftara vélarúmsþil er á
bandi no. 2.
Aðalþilfar er heilt þilfar frá skut og
fram í stefni með upphækkun á bandi
no. 21. Aðalþilfar er styrkt með lang-
bitum af nægjanlegri stærð svo hægt
sé að komast hjá því að styrkja með
stoðum í lest skipsins.
Tæki í brú
Eftirfarandi tæki eru í brú skipsins:
• FURUNO radar, 36 mílur með 10"
skjá
• SKANTI VHF talstöð
• SKIPPER ET-128 M 1 dýptarmælir,
38/50 kHz, 2 botnstykki
• GPS valsat 03 með Ieiðréttingu
• GPS valsat 2008 tengist sömu leið-
réttingu
• Farsími
• Bíltæki með CD spilara, 2 hátalar-
ar í borðsal
• Bíltæki með CD spilara, 2 hátalar-
ar í brú
• Straumbreytir fyrir bíltæki 24/12
• 1 stk. brúarstóll frá Marafli
Ennfremur loftnet fyrir talsstöðvar,
VHF, GMDSS, farsíma, útvarp og sjón-
varp.
Öryggisbúnaður
Tveir björgunarbátar eru staðsettir á
hvorri hlið skipsins. Annar er staðsett-
ur SB-megin á brúarþaki og er með
sleppibúnaði, en hinn er staðsettur
BB-megin framan við vélarúmskappa.
Brunaviðvörunarkerfi er í íbúða-
rými, brú og vélarúmi. Kerfið saman-
stendur af stjórnbúnaði og tveimur
greinum, önnur fyrir vélarúm og hin
fyrir íbúðarými ásamt reyk- og hita-
skynjurum, viðvörunarbjöllum og
handvirkum brunaboðum.
Kerfið er tengt við 24V rafkerfi
skipsins og rafgeymum fyrir neyðar-
lýsingu sem varaafli. Stjórnbúnaður
er í brú.
Annar björgunarbúnaður um borð
er í samræmi við kröfur og reglur
flokkunarfélags skipsins.
MjiIR 61