Ægir - 01.12.1999, Qupperneq 48
Fyrirtœkið Nortek beinir kastljósi sínu að brunaviðvörunar- og öryggismálum
um borð í skipum:
Nauðsynlegt að huga að
brunavörnum á sjónum
-segir Björgvin Tómasson, framkvæmdastjóri og rafmagnstœknifrœðingur
Að mínu mati halda útgerðir bet-
ur á brunavamamálum í skip-
um en á árum áður. Hins vegar er
komið að endurnýjun í mörgum skip-
atina og boðað hefur verið með reglu-
gerð að á nœsta ári skuli öllum
Hallon slökkvimiðlum skipt út fyrir
ötinur vistvœnni slökkviefni um borð
í skipum yfir 60 metrum. Þetta mun
kalla á umtalsverðar aðgerðir hjá
mörgum skipum og þessum útskipt-
um á slökkvimiðlum, sem og öðrum
verkefnum á sviði brutiavarnamála
um borð, cetlum við í vaxandi tnceli
að sittna," segir Björgvin Tómasson,
framkvasmdastjóri Nortek - öryggis-
kerfa í Reykjavík. Fyrirtcekið kynnti á
sjávarútvegssýningunni í haust þjón-
ustu sína á þessu sviði og Itefur t kjöl-
farið untiið að verkefnum fyrir marg-
ar útgerðir og tn.a. selt brtinaviðvör-
uiiar-, slökkvi- og myndavélakerfi t
eitt afþeim fjölveiðiskipum sem nú
eru í smíðum erlendis fyrir ísienskar
útgerðir.
Björgvin segir að þættir sem snúi að
brunavarna- og öryggismálum séu
einn af þeim liðum sem útgerðir horfi
til varðandi bættan aðbúnað um borð.
„í nýjum skipum viljum við gjarn-
an koma að málum á hönnunarstig-
inu og hanna brunaviðvörunar-,
slökkvi- og öryggiskerfi um borð en
þessa hönnunarvinnu bjóðum við
einnig fyrir öll önnur skip," segir
Björgvin.
Mesta áherslan
á brunaviðvörunarkerfi,
slökkvikerfi og myndavélakerfi
Nortek var stofnað árið 1996 á Akur-
eyri og starfaði fyrstu tvö árin ein-
göngu þar í bæ en flutti þá höfuð-
stöðvar á Bíldshöfða í Reykjavík. Eftir
sem áður er starfsmaður í vinnu á Ak-
ureyri en fimm starsmenn til viðbótar
í Reykjavík. Björgvin segir að hvað út-
gerðirnar snerti leggi Nortek mesta
áherslu á brunaviðvörunar-, slökkvi-
og myndavélakerfi fyrir skip. Einnig
nefnir hann hleðslustöðvar, vara-
aflgjafa og neyðarljós.
„Hvað slökkvikerfin varðar er í dag
mikil umræða um slökkvimiðlana og
áhrif þeirra á umhverfið, og sérstak-
lega ósonlagið. Fimm tegundir
slökkvimiðla eru í notkun í dag, þ.e.
C02, Inergen, Argonite, Argotec og
Halotron IIB. Þetta eru miðlar sem
hafa mismunandi eiginleika gagnvart
því að slökkva eld og þá kemur í okkar
hlut að ráðleggja kaupendum hvaða
slökkvimiðla skuli kaupa og bendum
við sérstaklega á mismunandi slökkvi-
tíma efnana," segir Björgvin.
Björgvin Tómasson, framkvœmdastjóri Nortek, með stýribúnað fyrir eldvarttakerfi.
rnm