Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.2000, Qupperneq 13

Ægir - 01.09.2000, Qupperneq 13
FRÉTTIR Samherji kaupir sig inn í laxeldið Samherji hf. hefur fest kaup á helmingi hlutafjár í Islandslaxi hf. í Grindavík og 85% hlutafjár í Víkurlaxi ehf. í Eyjafirði. Fjárfesting Samherja í þessum félögum nemur samtals um 215 milljónum króna. Fyrir er Samherji næststærsti hluthafinn í Fiskeldi Eyjafjarðar með um 11% hluta- fjár. Islandslax hf. rekur strandeldisstöð við Grindavík og er framleiðslugeta hennar um 1.000 tonn á ári. Þá rekur félagið seiðaeldisstöð við Grindavík og eru nú- verandi afköst stöðvarinnar um ein millj- ón seiða á ári. Þá hefur Islandslax nú fest kaup á seiðaeldisstöð að Núpum í Olfusi af Guðmundi A. Birgissyni. Framleiðslu- geta stöðvarinnar er tvær milljónir seiða á ári. Víkurlax ehf. er með fiskeldiskvíar í Grýtubakkahreppi í Eyjafirði og hefur verið með laxeldi í sjó þar síðustu 11 ár. Mikill vöxtur i fiskeldinu „Það hefur verið mikill vöxtur í fiskeldi í heiminum síðustu misseri og við höfum trú á að sú þróun haldi áfram. Aðstæður til fiskeldis hér eru góðar og öll skilyrði fyrir hendi til að atvinnugreinin eflist til muna í náinni framtíð," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Hann segir að margt bendi til þess að á komandi árum muni æ stærri hlutur þess fisks sem fer á markað koma úr fiskeldis- stöðvum. „Það er yfirlýst stefna Samherja að fylgjast ávallt sem best með þeirri þró- un sem á sér stað í sjávarútvegi og svara kalli tímans. Aukin þátttaka félagsins í fiskeldi er liður í því. Samherji hefur að undanförnu verið með umfangsmikla starfsemi í Grindavík og með kaupunum á hlut í Islandslaxi eykur félagið þátttöku sína í atvinnurekstri á svæðinu enn frek- ar,“ segir Þorsteinn Már. Faxa breytt Nótaskipið Faxi RE-9, skip Faxamjöls hf„ hélt fyrr i sumar tit Póllands þar sem skipið er í gagngerum endurbótum og breytingum. Það er væntanlegt tit tandsins með haustinu og er áættað að kostnaður við breytingarnar nemi um 350 miltjónum króna. mijjjj Um borð eru rafstöðvar af gerðinni Mitsubishi M.A.S. Stærð 112 KVA M.A.S. 95 M.A.S. 580 M.A.S. 1330 MDVELAR HF. Stærð 680 KVA Stærð 1364 KVA VIKELM ÞCRSTEINSSON AKURCTRI ICE FRESH

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.