Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 25
NÝTT FJÖLVEIÐISKIP
„Útgerðir munu fylgjast vel
með okkur"
Sturla segir stærðina á skipinu gera að
verkum að rúmt sé um áhöfnina á allan
hátt, jafnt íbúðir sem vinnslusali. Oll
hönnun miðist út frá hinni fjölhæfu
vinnslugetu og það skilji skipið frá mörg-
um þeim frystitogurum hér á landi sem
upphaflega voru hannaðir til ísfiskveiða
en var síðan breytt í vinnsluskip. Sturla
var á sínum tíma á nótaveiðum á Eld-
borginni en hefur lengi verið skipstjóri á
Samherjafrystitogaranum Akureyrinni
EA og síðan í eitt ár á Guðbjörginni IS.
Undanfarna mánuði heíúr Sturla stýrt
nótaskipinu Neptúnusi ÞH - „...og kynnt
mér nótina á nýjan leik,“ eins og hann
segir sjálfur.
Sturla segir að væntanlega verði túrar á
Vilhelm Þorsteinssyni EA mun styttri en
á hefðbundnum frystitogurum - að lík-
indum 7-15 dagar að jafnaði í uppsjávar-
fiskinum. „Eg reikna hins vegar ekki með
að við stoppum meira í landi en nauðsyn
krefur. Þetta er dýrt skip og um að gera
að halda því á veiðum eins og mögulegt
er. Skipið skilar litlu meðan það liggur
við bryggju," segir Sturla.
„Eg vænti þess að útgerðir hér á landi
muni fylgjast grannt með hvernig okkur
vegnar með skipið því að vissu leyti er
Samherji hf. að fara af áræði inn á nýjar
brautir í útgerð án þess að nokkuð sé
tryggt um hvernig til tekst. Menn þekkja
til útgerða fjölveiðiskipa í Noregi og
Færeyjum en þar er ekki um að ræða jafn
öflug og fjölhæf skip og þetta. Hins veg-
ar eru til stærri nótaskip og til að mynda
var nýlega afhent eitt slíkt til útgerðar á
Irlandi sem er tæplega 150 metrar að
lengd, eða um helmingi lengra en Vil-
helm Þorsteinsson," segir Sturla og svar-
ar þeirri lokaspurningu fúslega játandi
hvort ekki sé spenna að leysa landfestar
og láta á nýja skipið reyna á miðunum.
„Þetta er virkilega spennandi verkefni en
um leið krefjandi," segir Sturla.
„Draumur sjómanna
að rætast"
Arngrímur Brynjólfsson, sem einnig
verður skipstjóri á fjölveiðiskipinu Vil-
helm Þorsteinssyni tekur undir með
Sturlu að því fylgi fiðringur að fara í
fyrsta túr. Arngrímur hefur verið skip-
stjóri á nótaskipinu Þorsteini EA undan-
farin ár og er því þrautreyndur í nótaveið-
inni. Hann segir breytinguna frá Þor-
steini fyrst og fremst felast í stærðinni og
aflinu.
„Það verður virkilega gaman að komast
á miðin með svona öflugt tæki í höndun-
um. Okkur skipstjórnarmenn hefur auð-
vitað lengi dreymt um þróun í þessa átt
Vinnsluþilfarið er hlaðið tækjum en samt
virðist flugnóg rými.
hvað uppsjávarfiskinn varðar því breyt-
ingar hafa ekki orðið stórstígar frá því
frystitogararnir komu til sögunnar upp
úr 1980. Við getum sagt að með
fjölveiðiskipunum séu að renna saman
öflug nótaskip og stórir frystitogarar og
það hlýtur að vegar hagkvæmt að búa yfir
skipi sem getur stundað þessar uppsjávar-
og botnfiskveiðar jöfnum höndum,“ seg-
ir Arngrímur og bendir á að Vilhelm
Þorsteinsson sé fyrst nokkurra skipa sem
nú muni koma inn í flotann búin tækjum
til vinnslu á uppsjávarfiski. Sérstaða
skipsins felist hins vegar í því að vera um
leið öflugur frystitogari.
„Eg kann ekki að meta hvort við erum
á upphafsreitum nýs breytingaskeiðs, líkt
og fylgdi í kjölfar fyrstu frystitogaranna.
Mér finnst það þó vafamál, einfaldlega
vegna þess að fjölveiðiskip verður að
byggja frá grunni. En hvað snýr að rekstr-
aröryggi fjölveiðiskipa þá hlýtur það að
vega mikið vegna þeirra möguleika sem
þau bjóða uppá,“ segir Arngrímur.
„Eg held að stærðin, aflið og vinnslu-
möguleikarnir verði þau atriði sem okkur
bregður mest við frá því sem var um borð
í Þorsteini EA. Þessi atriði leiða af sér að
allt vinnufyrirkomulag verður annað og
skemmtilegra fyrir stjórnendur og alla
áhöfn," bætir skipstjórinn við.
WÁRTSILA [Mg® A ISLANDI
Hliðarskrúfur eru frá © brunvoll í Noregi og eru af gerðinni
FU-63-LTC-1550-650 kW að framan og FU-63-LTC-1750-735 kW að aftan
VELAR m\ SKIP
Hólmaslóð 4-101 Reykjavík - Sími 562 0095 - Fax 562 1095