Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 33
FISKELDI
isstöðvum fyrirtækisins nýtt allt
að áttatíu sinnum og hægt er að
ala fiskinn við nánast hvaða hita-
stig sem er. Þær nýjungar sem
farnar hafa verið hjá Máka hafa
einnig vakið mikla athygli hjá
Evrópusambandinu og íyrir vikið
hefur fyrirtækið verið þátttakandi
í ýmsum Evrópuverkefnum og
fengið umtalsverða styrki út á
þau. Um þessar mundir er á ann-
an tug fiskeldisfyrirtækja á Is-
landi sem fá styrki frá ESB og þar
af er um helmingur þeirra í
Skagafirði.
Orri Hlöðversson er fram-
kvæmdastjóri Hrings - Atvinnu-
þróunarfélags Skagafjarðar. Hann
segir að sú styrkjaflóra Evrópu-
sambandsins sem Islendingar hafa
aðgang að sé mjög fjölskrúðug, en
leggur þó áherslu á að ekki geti
hver sem farið að stunda gullgröft
í sjóðum ESB. Styrkveitingar séu
ströngum skilyrðum háðar og
styrkir fáist ekki nema ljóst sé að
þau þróunarverkefni sem unnin
séu geti gagnast fyrirtækjum víða
í Evrópu.
„I mínum huga er helsti ávinn-
ingurinn sá að menn geta með
svona verkefnum öðlast sambönd
og samstarf erlendis sem getur
gagnast þeim með ýmsum hætti,
til dæmis ýmisskonar rannsóknar-
aðstoð og þekking. En menn
skulu ekki fara að gera sér vonir
um að hægt sé að fá styrki frá ESB
til þess að bjarga iaunagreiðslum
um næstu mánaðamót."
Leiðin var lengri og
skrefin styttri
Rauði þráðurinn í máli þeirra sem
töluðu á ráðstefnunni á Hólum í
Hjaltadal var sá að þeir sem fást
við fiskeldi á Islandi verði í ríkari
mæli að sameina krafta sína. Þetta
ætti ekki síst við um markaðsmál-
in ..því menn hafa verið að láta
markaðinn plata sig út og suður,“
eins og Haraldur Haraldsson,
stjórnarformaður Máka hf., komst
að orði. Hann sagði að þrátt fyrir
það bakslag sem komið hefði í
fiskeldi á Islandi á sínum tíma
hefðu menn ekki misst móðinn.
„Leiðin var lengri og skrefin
styttri en menn töldu,“ sagði Har-
aldur.
Vigfús Jóhannsson í Stofnfiski,
talaði á ekki ósvipuðum nótum.
Hann sagði að nú væri þessi grein
að verða nokkuð sjálfbær, en þeir
þættir sem hvað mestu skiptu
Haraldur Haraldsson, stjórnarformaður Máka hf. og Guðmundur Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, vinna að uppbyggingu barraeldis, sem á margan hátt má segja að marki upphaf nýrra
tíma í fiskeldi hérlendis.
væru auðvitað þeir að neysla á eld-
isfiski færi sífellt vaxandi og verð-
ið á honum væri stöðugra, gæði
þess fóðurs sem notað væri færu
vaxandi og markaðsmálin væru að
komast í betra horf. Síðast en ekki
síst væri fiskeldi nú viðurkennt
sem grein sem hefði getað byggst
upp í sátt við umhverfið og ætti
mikla möguleika á að bæta sig.
Því væri engin ástæða til annars
en horfa með bjartsýni fram á veg-
inn.
VILHELM ÞORSTEINSSON EA 11
TEIKNISTOFA njCÞ
TRYGGVABRAUT 22 AKUREYRI SÍMI 460 5757 FAX 462 6538