Ægir - 01.09.2000, Page 21
ERLEND
Við óskum Samherja hf. til hamingu með
Þorskurinn étur
rækju í trollinu
Samkvæmt Fiskaren gengur fiskifræð-
ingum i Noregi iila að finna samhengi
milli metins rækjuáts þorsks og
sveiflna í rækjustofni. Rannsóknir
sýndu mjög mikið rækjuát þorsks árið
1994 en þrátt fyrir það stækkaði rækju-
stofninn. Það gæti bent til þess að
innihald þorskmaga gefi ekki rétta
mynd af þvi sem þorskurinn étur af
rækju. Orsökin kynni verið sú að hann
éti rækjuna meðan hann er í rannsókn-
artrollinu. í Ijósi þess að mikill hluti
rækjunnar hefur reynst ómeltur fengi
sú skýring veL staðist.
Flökun um borð
arðbær
Nokkrir norskir nýtísku línuveiðarar hafa
í kyrrþey orðið „verksmiðjuskip", þ.e. afl-
inn er flakaður um borð. Utgerðarmenn
vilja ekki hafa hátt um þetta því þeir ótt-
ast aðgerðir af hálfu hins opinbera.
I norska blaðinu Fiskaren segir að þessi
vinnsla hafi byrjað árið 1984 og nú
stundi 4-5 af 100 línuveiðurum hana. I
fyrstu var úrgangurinn notaður í eldis-
fiskafóður en síðan féll verðið svo mikið
að ekki borgaði sig lengur að hirða hann.
Margir spáðu því að þessi vinnsla
myndi hvorki borga sig fjárhagslega né
reynast framkvæmanleg af ýmsum öðrum
ástæðum. Spárnar rættust þó ekki og nú
er fiskur, aðallega smáfiskur, flakaður um
borð, en stærsti fiskurinn fer í salt og er
unninn í landi.
Utgerðarmenn línuveiðaranna segja að
hið opinbera hafi alltaf unnið gegn þeim;
þeir geti hvorki fengið sömu styrki og
aðrir né lán til að koma upp vinnsluað-
stöðu um borð.
Gert hefur verið vinnslupláss í bátun-
um Husby og Husby Senior þótt þeir séu
ekki nema 40 og 42 metra langir. Vinnsi-
an skapar tvö ný störf um borð. Öllum
úrgangi, nema gellum, er hent vegna þess
að fyrir hann fæst of lágt verð til þess að
borgi sig að hirða hann.
Husby bátarnir eru elstir þeirra báta
þar sem aflinn er flakaður um borð.
Hæsta kílóverð sem fengist hefur fyrir
ýsuflök er tæpar 550 ISK. Þannig fá þess-
ir bátar megnið af virðisauka aflans, sem
landvinnslan hefúr annars fengið, bæði
innan og utan Noregs.
Eins og áður segir vilja útgerðarmenn
ekki að hátt sé haft um þessa vinnslu.
Þeir segja reynslu sína vera þá að vegna
stjórnunaráráttu hins opinbera verði allt
frá þeim tekið sem helst er hægt að
hagnast. Skilaboð frá kaupendum eru
skýr. Þeir telja flökin af bátunum þau
bestu sem fáanleg eru. Fiskitegundir, sem
helst eru flakaðar um borð, eru þorskur,
ýsa, steinbítur, langa og keila.
Icetech á íslandi hf.
Lyngási 1,210 Garðabær.
Sími: 565-9400 Fax: 565-9409