Ægir - 01.09.2000, Page 48
SKIP ASTÓLLIN N
Geir ÞH í Hafnarfjarðarhöfn. Skipið verður gert út á dragnót og net.
fremst er stafnhylki fyrir sjó, þá íbúðir
með ferskvatnstönkum í botni, fiskilest
með þurrrými og frárennslis- og elds-
neytistönkum í botni, vélarúm með
tveimur hátönkum og aftast er stýrisvéla-
rými.
Fremst á aðalþilfari er kaðlageymsla, þá
vistarverur og vinnsluþilfar. Fremst á efra
þilfari eru öldubrjótur og akkerisspil, þá
Ijósamastur sem jafnframt er neyðarupp-
gangur úr íbúðum. Togspilin eru tvö fyr-
ir framan brú. Þar er þilfarskrani og
fremri fiskimóttaka, sem er áföst lestar-
lúgu. Brúin er á reisn með andveltigeymi
í holrýminu, ásamt loftræstibúnaði ofl.
Sambyggt brúnni er skorsteinshús og á
þaki brúar er mastur fyrir ratsjá og sigl-
ingaljós. Aftan við brúnna er önnur fiski-
móttaka, þilfarskrani og toggálgi með
netatromlu. Aftast á efra þilfari er allstór
lúga sem er opnuð þegar leggja á net.
íbúðir
I skipinu eru fbúðir og klefar fyrir allt að
9 manna áhöfn í eins og fjögurra manna
klefum fremst í skipinu. Undir aðalþil-
fari, fremst í skipinu, eru tveir fjögurra
manna klefar en skipstjóraklefinn er bak-
borðsmegin á aðalþilfari. Aftan við klefa
skipstjóra eru salerni, sturta og þvotta-
klefi, auk stakkageymslu. Stjórnborðs-
megin eru eldhús og setustofa sem er
sambyggð matsal. Matsalur er með
glugga með útsýni aftur á vinnsluþilfar.
Eldhús matssalur og klefar eru klædd
Fibo þilplötum og parket er á gólfúm.
Vistarverur eru einangraðar með steinull
og hitaðar upp með miðstöðvarofnum.
Brúin
Brúin er nánast rétthyrnd, sambyggð
skorsteinshúsinu og er á upphækkun
(reisn). Stjórnborðsmegin er L-laga
stjórnborð fýrir siglinga- og fiskileitar-
tæki. Skipstjórastóllinn er frá NorSap.
Bakborðsmegin í brúnni er kortaborð,
sófi og stigi niður í stakkageymslu á
milliþilfari. Frá brú er útgangur aftur á
efra þilfar. Á brúarþaki er ratsjármastur,
2000 W ískastari frá Francis, segulátta-
viti frá John Lilley & Gillie Ltd., tvö
Gewiss 400 W vinnuljós framan á brú og
tvö samskonar vinnuljós sem lýsa niður á
þilfar. Á brúarþaki eru tveir 10 manna
Víking gúmmíbjörgunarbátar í Sigmund
sleppigálga.
Milliþilfar
Vinnsluþilfarið er rúmgott miðað við
stærð bátsins og er um 14 metra langt.
Fremst á vinnsluþilfari er vökvaknúin
netalúga stjórnborðsmegin og dráttarspil
fyrir net. Aftan við netalúgu er fiskimót-
taka og aðgerðarborð með sex stöðvum,
þvottakar og færibönd. Aftast á vinnslu-
þilari er uppstilling fyrir net sem einnig
nýtist á dragnótarveiðum sem nótar-
geymsla.
Lestin
Lest skipsins er rúmgóð og nánast kassa-
löguð. Hún nær frá bandi 14 að bandi 28
og er um 6,7 metrar að lengd, um 6,7
metrar að breidd og 2,5 metrar í lofthæð,
um 140 rúmmetrar. Lestin er einangruð
með polyurethan og klædd ryðfríu stáli. I
lestinni er kælikerfi úr ryðfríu stáli. Til
kælingar á afla er mjúkískerfi frá Brunn-
um sem afkastar 10 tonnum af þurrís á
sólarhring. Mjúkísvélin er aftast í bak-
borðshorni lestarinnar. Fyrir lest eru tvær
fiskilúgur og snúningsfæriband frá Ósey.
Vélarúm og vélbúnaður
Aðalvél Geirs er Catepillar 3412E
DITA, 12 strokka með afgasblásara og
eftirkælingu. Vélin er skráð 473,3 kW
(643 hö) við 1800 sn/mín. Við vélina er
Helstu tæki í brú o.fl.
Stjórntæki fyrir aðalvél Ósey stjórntæki
Aðvörun fyrir vélar Caterpillar
Gíro áttaviti og sjálfstýring Robertson RGC 11
Radar JRC JMA 3800 með Arpa
Logg, vegmælir C. Plath
Siglingatölva MaxSea
Staðarákvörðun (GPS) Simrad Shipmate CP 32-DGPS og plotter
Plotter JRC Ploter MNU-800
Dýptarmælar Simrad ES 60, 50/200 Hz og 19" skjár
Sónar Westmar HD 800-160
Veiðafærakerfi Seintech
VHF-taLstöð Shipmate RS 8300
Að auki er í brú sjálfvirkur búnaður fyrir tilkynningaskyldu og neyðarhjálp frá STK RaCal, Vingtor 5 rása kallkerfi, Nokia NMT sími, stjórntæki og aðvörun fyrir aðalvél og togspil, brunakerfi frá Eltek, sjónvarp, útvarp og stjórn- og aðvörunartöflur.